Skinfaxi - 01.11.1946, Qupperneq 63
SKINFAXI
115
metnaðarmáli sinu að eiga þar fulltrúa, án tillits til þess, hvort
það hefur möguleika til þess að vinna mótið eða hvernig
keppendur þess standa sig miðað við keppendur annarra hér-
aðssambanda. Þáttakan sýn-
ir þá réttu mynd af íþrótta-
lifi einstakra ungmennasam-
banda og eftir henni verður
íþróttastarf þeirra fyrst o<<
fremst dæmt, en ekki eftir
sigafjöldanum á landsmót-
inu, enda þótt þau séu
mælikvarði út af fyrir sig
Það er fullkomið skilnings-
leysi á gildi íþróttanna, ef
sambönd senda ekki kepp-
endur af ótta við það að
hljóta fá stig. Og þó að þátt-
takan i þessu móti hafi verið
góð, gæti liún verið enn :>
mennari og er það til athug-
unar fyrir þau sambönd
sem ekki senda fulltrúa að
þessu sinni. Þau eiga tafar-
laust að undirbúa þátttöku
sina i næsta landmóti.
Áslaug Stefánsdóttir.
Niðurlag.
Landsmótið að Laugum er einn merkasti iþróttaviðburður
þessa árs og stórmerkur þáttur í félagslífi þjóðarinnar. Slíkur
mannfagnaður er því miður of fágætur. Þarna fór saman
mjög myndarleg þátttaka i iþróttunum víðsvegar að af land-
inu, liið fegursta veður, staðhættir hinir ákjósanlegustu á
Laugum, ágætur undirbúningur og síðast en ekki sizt einstak-
lega prúðmannleg framkoma þess mikla mannfjölda, er sótti
mótið þessa tvo daga.
Mótið sóttu um 200 íþróttamenn, af Austurlandi, Suður-
landi, Kjósarsýslu óg Borgarfirði, svo ég nefni þá, sem lengst
áttu að sækja. Ferðin hjá Sunnlendíngunum tók rúma viku.
Þetta er þó minni fórn en allt það starf, sem á bak við það
liggur að sækja mótið, þótt um langan veg sé. Hver íþrótta-
niaður verður að eyða löngum tíma i þjálfun, og forustumenn
sambandanna að skipuleggja starfið. Hér hafa margir menn
unnið gagnleg störf, sem borið hafa giftudrjúgan árangur.