Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1946, Side 73

Skinfaxi - 01.11.1946, Side 73
SKINFAXI 125 arar eða íþróttamenn, sem hafa þekkingu á íþróttamálum, fái atvinnu i byggðarlögum sinum, svo að þeir geti ieiðbeint í iþróttum.“ b) „Sambandsþing U.M.F.l. beinir þvi til stjórnar U.M. F.Í., að athuga möguleika fyrir þvi, að reist verði eitt eða fleiri íþróttaheimili í bverjum landsfjórðungi eftir þvi, sem þörf væri fyrir og samkomulag næðist um við stjórn héraðs- sambandanna. Einnig verði ráðinn iþróttakennari, sem hafi aðsetur sitt á téðu íþróttaheimili.“ Þskj. IX. „15. sambandsþing U.M.F.Í. beinir þvi til stjórna félaga og héraðssambanda, að Umf. Reykjavikur er reiðubúið að taka á móti mönnum utan af landi, sem vilja æfa íþróttir i lengri eða skemmri tíma, og mun láta þeim i té endurgjaldslaust iþróttakennslu við góð skilyrði, án þess að þeir verði fé- lagsbundnir í Reykjavík." Þskj. X. „15. sambandsþing U.M.F.Í. felur sambandsstjórninni að gangast fyrir landsmóti i iþróttum á Austurlandi vorið 1949. Mótið verði haft með svipuðum liætti og fyri'i landsmót U. M.F.Í.“ Þskj. XI. a) „15. sambandsþing U.M.F.Í. telur nauðsynlegt, að öll sambandsfélög haldi námskeið fyrir félagsmenn sína um gild- andi lög, leikreglur og annað er varða stefnumál félaganna.“ b) „15. sambandsþing U.M.F.Í. felur stjórn sambandsins að athuga þá möguleika, að íþróttaflokkar (t. d. i sundi, glímu og frjálsum íþróttum), heimsæki æskulýðsfélög í Noregi næsta sumar í tilefni af 40 ára afmæli U.M.F.Í. og jafnvel að stuðla að hópferð ungmennafélaga þangað.“ Þskj. XII. a) „15. sambandsþing U.M.F.Í. samþykkir framkomna til- lögu Þorsteins Einarssonar og Daníels Ágústinussonar um að skora á Alþingi að það setji lög um fjárstuðning ríkisins við byggingu félagaheimila allt að Vs kostnaðarverðs og rikis- ábyrgð á láni allt að Vs kostnaðarverðs. Einnig að skora á félagsmálaráðherra, að bann skipi milliþinganefnd til þess að rannsaka félagaheimilaeign landsmanna og gera tillögur til bættrar aðstöðu almennings til félagsstarfa.“ b) „Sambandsþingið lýsir ánægju sinni yfir hinni nýju skólamálalöggjöf og telur, að með henni hafi æskulýður lands- ins öðlazt glæsilegri möguleika til menntunar og alliliða þroska en áður voru fyrir bendi. Má í þvi sambandi nefna lög um

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.