Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1946, Side 83

Skinfaxi - 01.11.1946, Side 83
SKINFAXI 135 laniion: Cjuhn. ^3nffi ^JCriitjá Setningarræða á móti r.M.S. Vestfjarða 23. jimí 1946. Samkoraugestir! Ég set þetta mót. Hér sjáið þið hetjur með kúlur og spjót berjast af alúð og áhuga i senn, islenzkrar framtiðar baráttumenn. Röskustu fótliðar reyna sig hér, runnið og stokkið til fagnaðar er. Þrístökk og langstökk og hástökk er háð, handleikin kringlan og takmarki náð. Eiga hér saman sitt íþróttaþing ungmennafélögin hér í kring: 17. júní er hylltur hér, Höfrungur stekkur og leikur sér. Ganga með vorblóm i gleðina skal Gísli Súrsson frá Haukadal. Það er Bifröst á staðnum, og stefnan er vor, er Stefnir tekur sin framaspor. Nú ganga hér drengir til orðstírs án efs frá ungmennafélagi Mýrahrepps. Og svo kemur stúlkan i lifandi leik, lokkadökk eða fléttubleik. Sýna liér lipurð með sigrandi þor svanfríðar meyjar með lóuspor. Tilgangur mótsins að mestu er sá, menningarstarfsemi fólksins að sjá, sjá hvernig œskunnar erfiðismenn íþróttin styrkir og fegrar í senn, sjá hvernig tómstundir hafa menn hér hagnýtt til þroska og velferðar sér, sjá hvernig æskan með alúð og dúð íslandi spinnur sinn hamingjuþráð.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.