Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 88

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 88
140 SKINFAXI Af einstaklingum fengu flest stig: Hagalín Kristjánsson (B) 13, Sturla Ólafsson (S) 7 og Jens Kristjánsson (B) 6. HÉRAÐSMÓT U.M-S. AUSTUR-HÚNAVATNSSÝSLU. var haldið að Blönduósi 17. júní. Mótið hófst með guðsþjónustu kl. 11 í Blönduósskirkju. Sr. Pétur Ingjaldsson á Höskuldsstöðum prédikaði, en sr. Þorsteinn Gíslason i Steinnesi var fyrir altari. Að lokinni messu var mótið sett af formanni sambandsins, sr. Pétri Ingj- aldssyni. Ræður fluttu Ágúst Jónsson, bóndi, Hofi, Bjarni Ó. Frimannsson bóndi, Efri-Mýrum, en Páll Kolka héraðslæknir las ujjp. Á eftir Iiverri ræðu var almennur söngur. Þá hóf- ust íþróttir: Hástökk, langstökk, þrístökk, kúluvarp, löO metra hlaup og víðavangshlaup. Þrír beztu menn í hverri iþrótt lilutu silfurpeninga frá sambandinu. Fimm ungmennafélög tóku þátt i mótinu, og hlaut ungmennafélagið Fram á Skagaströnd flest stig. Að lokum var dans í samkomuhúsinu og Hótel Blönduós. Margt manna var á Blönduósi þennan dag. Úrslit urðu: 100 m. hlaup: Björn Kristjánsson (Umf. Fram) 12.8 sek. Víðavangshlaup: Jónas Jóhannsson (Umf. Þingbúa) 13:27.5 min. Langstökk: Bæringur Kristinsson (Fram) 5.20 m. Hann vann einnig kúluvarpið (9.85 m.). Hástökk: Arnljótur Guðmundsson, Umf. Svínavatnshrepps (1.45 m.). Hann vann einnig þrístökkið (11.28 m.). Keppendur voru alls 16 frá 5 félögum. Flest stig hlutu: Umf. Fram, Skagaströnd, 17 stig. Umf. Svinavatnshrepps 9 stig og Umf. Bólastaðarhlíðarhrepps 5 stig. Á Blönduósi, þar sem mótið fór fram, er livorki íþrótta- Völlur né hlaupabraut og skilyrði til íþróttakeppni því mjög crfið. íþróttakennsla hefur lítil verið þar fyrr en á síðastliðn- um vetri. Áhugi fyrir aukinni íþróttastarfsemi fer nú vax- andi í héraðinu. HÉRAÐSMÓT U.M.S. SKAGAFJARÐAR var haldið á Sauðárkróki 17. júni. Ræðu flutti sr. Gunnar Gislason i Glaumbæ. Jón Norðfjörð leikari skemmti með upp- lestri. Úrslit urðu: 100 m. laup: Ottó G. Þorvaldsson (Umf. Tindastóll) 12 sek. Hann vann einnig 400 m. hlaup, 55,6 sek.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.