Skinfaxi - 01.11.1946, Blaðsíða 95
SKINFAXI
147
Umf. Öræfa í Öræfum byggði sundlaug lilaðna úr torfi að
Svínafelli í Öræfum.
Umf. Hekla, Rangárvöllum, reisti veglegan samkomuskála
að Strönd. Bókasafn félagsins telur rúmlega 500 bindi.
Umf. Ingólfur, Holtum, lauk við byggingu samkomu- og
íþróttahúss að Marteinstungu, sem er liið mesta mannvirki.
Vann að endurbótum á sundlaug sinní. Gefur út handskrifað
félagsblað. Bókasafn félagsins telur 560 bindi.
Umf. Ásahrepps í Holtum er að hefja samkomuliússbyggingu.
Vinnur allmiltið að trjárækt. Bókasafn félagsins telur rúm-
lega 500 bindi.
Umf. Samhygð í Gaulverjabæjarhreppi vinnur að byggingu
samkomuhúss og trjárækt.
Umf. Vaka, Villingaholtshreppi, reisti samkomuskála.
Umf. Skeiðamanna, Skeiðum, rekur unglingaskóla í þrjá
mánuði. Lék „Húrra, krakka“. Vinnur að skógrækt, örnefna-
söfnun og kortagerð af Skeiðasveit.
Umf. Gnúpverja, Gnúpverjahreppi, lék Saklausa svaliarann
og ímyndunarveikina.
Umf. Hrunamanna, Hrunamannahreppi, lék Jeppa á Fjalli
og Brimhljóð. Vinnur að sundlaugarbyggingu að Flúðum og
ötullega að skógrækt.
Umf. Hvöt í Grímsnesi gefur út fjölritað blað, sem nefn-
ist Ljósvakinn. Bókasafn félagsins telur um 1000 bindi.
Víða gætir gróanda í starfsemi félaganna, félagsmönnum
fjölgar og myndarleg verkefni eru tekin til úrlausnar, sem
krefjast mikillar fórnfýsi félagsmanna. Fundarstarfsemi og
skemmtanalíf stendur í miklum blóma. Hinu er svo ekki að
leyna, að ýmis félög og jafnvel héraðssambönd starfa litið
og virðast engin áhrif hafa fyrir æskuna. Þegar spurt er
um ástand og horfur, svarar eitt félagið þannig:
„Ástandið er ekki gott því allir dofna,
félagið mun sjálfsagt sofna.“
Vonandi tekst að blása lífi í þetta félag og önnur, sem
svipað er ástatt með, þvi hin dugandi og starfsömu félög
eru svo margfalt fleiri. Og hreyfingin i lieild stendur föstum
og öruggum fótum í þjóðlifinu, og það frekar en oftast hefur
verið áður.
D. Á.