Skinfaxi - 01.11.1946, Blaðsíða 96
148
SKINFAXI
llit §end Skinfaxa.
Dvöl, 13. árgangur, 1945.
Dvöl er skemmtilegt rit. Hún flytur þýddar úrvals smá-
sögur, íslenzkar sögur, ljóð, ferðasögur, fróðleiksgreinar og
dóma um bækur. Að sjálfsögðu er efni ritsins misjafnt að
gæðum, en yfirleitt má segja, að að það sé allt vel læsilegt,
og sumar smásögurnar eru hinar prýðilegustu. Ekki er að
efa, að ritið er aufúsugestur á mörgum heimilum, og víst er
um það, að miklu er það betra lesefni fyrir unga og gamla
en margt annað, sem nú flæðir yfir fólk í bóka- og blaða-
formi. Slikt heimilisrit, sem prentað er á góðan pappir og
er snoturt í sniðum, ætti að birta fallegar og velgerðar ljós-
myndir, bæði íslenzkar og útlendar. Slíkt myndi gera ritið
slórum glæsilegra og auka vinsældir þess.
Ritstjóri Dvalar er Andrés Kristjánsson.
Heilbrigt líf, tímarit Rauða Kross íslands,
1.—2. hefti VI. árgangs, 1946.
í þetta hefti rita margir þekktir læknar um ýmis efni varð-
andi læknavísindi, heilbrigði í landinu fyrr og nú, vanda-
mál, er bíða úrlausnar, sjúkrahús o. fl. Er ritið stórfróðlegt
og á mikið erindi til almennings. Einnig er ritið furðulega
skemmtilegt aflestrar, þegar um svo einhæft efni er að ræða.
Stendur af þessu tímariti gustur heilbrigði og hleypidóma-
leysis, og á Rauði krossinn þakkir skilið fyrir að gefa það
út. Væri vel, ef læknastéttin öll tileinkaði sér anda þess. Er
liin fyllsta þörf á þvi, að skilningur manna aukist á þeim
efnum, sem Heilbrigt líf hefur að flytja.
Ritstjóri er dr. Gunnl. Claessen.
SKINFAXI
Útgefandi: Sambandsstjórn Ungmennafélaga Islands.
Pósthólf 406 — Reykjavík
Ritstjóri: Stefán Júlíusson,
Brekkugötu 22, Hafnarfirði.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN H.F.