Skinfaxi - 01.11.1956, Side 22
118
SKINFAXI
því allan tímann, sem hann dvaldi í Reykjavík. Var
hann ritari félagsins og lét mikið til sín taka um
starfsemina.
Hauslið 1916 fór Guðmundur vestur á ísafjörð og
var þar nær samfellt til dauðadags. Hann gekk þegar
í „Ungmennafélag lsfirðinga“ og varð brátt formaður
þess. Ilinn 25. febrúar 1917 stofnaði hann svo Ung-
mennafélagið Árvakur í því skyni að ná betur til unga
fólksins. Var Guðmundur lengstum l'ormaður þess
félags og lífið og sálin í framkvæmdum þess. Guð-
mundur var sambandsritari U.M.F.I. árin 1924—’33.
Stjórnarstörfin hvíldu mjög á hans herðum þau árin
og einkum 1928—’29, er hann tók tímarit sambands-
ins „Skinfaxa“ vestur til sín og annaðist um rilstjórn
hans ásamt Birni Guðmundssyni á Núpi í Dýrafirði.
Guðmundur starfaði mikið i Góðlemplarareglunni og
gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Einkum lét hann
til sin taka innan unglingareglunnar. Hann starfaði
og innan K.F.U.M. á ísafirði, var í safnaðarstjórn síð-
ari árin og meðhjálpari í Isafjarðarkirkju. Var Guð-
mundur trúmaður einlægur og liafði ávallt áhuga
fyrir kristnum fræðum og kirkjumálum, enda mikill
vinur og stuðningsmaður presta þeirra á Isafirði, ,er
voru þar samtímis honum. Hér verða ekki rakin marg-
háttuð félagsstörf Guðmundar. Þess verður þó að geta
'hér til viðbótar, að liann var einn af forgöngumönn-
um byggðasafns ísfirðinga og lagði á sig mikið starf
fyrir það merka mál og hugur lians til þess kom
fram áþreifanlega, er hann arfleiddi byggðasafnið að
húsi sínu „Sóltúnum" ásamt munum sínum ýmsum
og mun sú gjöf og starf Guðmundar i þágu byggða-
safnsins Lengi verða munað og þakkað. — Guðmund-
ur var áhugamaður innan „Sögufélags lsfirðinga“ og
i stjórn þess.
Menningaráhugi Guðmundar og mannræktar mun
lengi halda nafni lians á lofti, en hinir mörgu list-