Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1956, Page 41

Skinfaxi - 01.11.1956, Page 41
SKINFAXI 137 Austri, Raufarhöfn; Umf. Afturelding, Þistilfirði og Umf. Framtíðin, Þórshöfn. Öll þessi félög hafa haldið uppi félagsstarfsemi ú árinu, eftir bezlu getu, bæði með fundarliöldum og skemmtisam- komum, einnig hafa þau öll unmð og styrkt skógraekt, ó ein- livern hátl. í skýrslu Ungmennasíimhands - Norður-Þingeyinga, segir meðal annars: „Ölvun á samkomum er orðin það mikil, að óhjákvæmilegt er að hafa lögreglu á hverri skemmtun. Eitt mesta vandamál framtíðarinnar er, livernig koma á í veg fyr- ír áfengisneyzlu á samkomum. Fátæk félög í fámennum hér- uðum hafa tæpast fjárhagslega getu til þess að halda uppí nauðsynlegri löggæzlu. I>ar þyrfti ríki og sýslufélög að koma til.“ Það eru ekki ýkja mörg ár siðan, að naumast sást drukk- inn maður á sainkomum, hvað þá utan þess á aímannafæri. En fyrir okkur íslendingum, hefur farið likt og frumstæðum þjóðum Afríku og Asíu, þegar hvítir menn fundu og fluttust til landa þeirra, voru frumbyggjarnir næmastir á verst'u siðj og háttu liinna hvítu innflytjenda. ' Á seinni árum liafa kynni og tengsl íslendinga og annarrá þjóða ávallt verið að eflast og styrkjast. Að nokkru leytl meðvitandi og að mörgu leyti óafvitandi, hafa siðir okkar og lifnaðarhættir breytzt að sama skapi. Og einn af þeim siðum, sem við höfum orðið mjög næmir fyrir eru drykkjusiðir. Sá siður er orðinn það útbreyddur, að nú er naumast livergi nægilegt, að byggja félagsheimili eða samkomuhús, þar sem almenningur getur komið saman, sér og öðrum til skemmtun- ar. Heldur verður og að byggjíi í nánd tugthús, fyrir nokk- urn liluta samkomugesta. • Einar Benediktsson kvað: „Ásbyrgi, prýðin vors prúða lands, perlan í straumanna festi“. Á þessum stað, sem Einar Ben. lýsir svo fagurlega, lieldur U.N.S.Þ. sín héraðsmót. Það er á þessum stað, sem lögreglulið þarf að vera svo öflugt á samkomum, að heilt héraðssamband með 8 félögum, getur ekki risið undir kostnaði þess. Vissulega hefur íslendingurinn breytzt, þvi auðséð er, að hann skynjar ekki lengur fegurð perlunnar. „Hvar skal byrja? hvar skal standa? hátt til fjalla? lágt til stranda?

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.