Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1963, Page 12

Skinfaxi - 01.11.1963, Page 12
Ályktun 23. sambandsþings UMFÍ um æskulýðsmál. 23. sambandsþing UMFl haldið í Reykja- vík dagana 7. og 8. sept. 1963 þakkar skól- um landsins fyrir hinn mikla skerf, sem þeir hafa lagt fram til heilbrigðs félagslífs æskulýðsins. Þingið telur að auka þurfi fé- lagslegt uppeldi í skólum landsins og meta beri félagsstörf til launa ekki síður en önn- ur störf í skólunum. Þingið vekur í þessu sambandi ahygli á fyrirhugaðri stofnun lýðháskóla í Skálholti og minnir á skóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal. Þingið telur, að ekki megi svipta ung- linga tómstundum þeirra með of löngum vinnudegi, enda séu þær skipulagðar með aðstoð hins opinbera. Varast ber og að láta böm og unglinga vinna störf, sem eru um of áhættusöm og erfið miðað við þroska þeirra. Þingið leggur áherzlu á, að gefa verði þeirri staðreynd auknar gætur, að heimilið er grundvöllur þjóðfélagsins og að þar þurfa börn og unglingar að eiga athvarf, hvað húsakynni snertir og ytri aðstæður, en um fram allt, að foreldrar sinni börnum sínum sem mest. Sambandsþingið telur rétt, að kirkjan og æskulýðssamtök taki höndum saman og hefji fræðslustarf fyrir ungt fóik, sem hyggur á hjúskap, m. a. með útgáfu rita um þessi efni. Þingið telur, að ríkisútvarpið hafi með lofsverðum hætti reynt að stuðla að heima- veru fólks með ýmsu góðu útvarpsefni, svo sem vinsælum skemmtiþáttum. Þingið beinir því til alþingis og annarra aðila, að aukið verði eftirlit með fjárreið- um unglinga og að heimilunum sé veitt að- stoð í þessum efnum, og telur lög um skyldusparnað í rétta átt. Þingið harmar vaxandi afbrot unglinga og ýmiss konar uppivö'ðslu á almannafæri og brýnir það fyrir stjórnvöldum um leið og það þakkar aukna viðleitni þeirra, að taka þessi mál föstum tökum og gæta í hví- vetna lagafyrirmæla um þau. Þingið skorar á æskulýðsfélagsskap hvern sem er, að hafa skemmtiatriði á sam- komurn með menningarbrag, hvað dag- skráratriði snertir og ytri aðbúnað allan. Þingið bendir á Ungmennasamband Borg- firðinga í því sambandi, sem nýlega hafa hafizt handa um bætt skemmtanalíf ung- litnga í héraði sínu m. a. með vegabréfa- skyldu ungmenna. Sambandsþingið fagnar þeirri fyrirætl- an menntamálaráðherra, að koma á sér- stakri löggjöf um æskulýðsmál og telur að stofna beri sérstaka deild innan mennta- málaráðuneytisins, er fari með þau mál. Þingið telur að vinna beri að því, að allir unglingar eigi þess kost, að vera í hollum æskulýðsfélagsskap, við góð starfsskilyrði, sem keppir að því að varðveita þá frá glap- stigum. Þingið telur aðkallandi, að sérstökum námskeiðum sé komið á fyrir æskulýðs- leiðtoga og séu þau í tengslum við Kenn- araskóla Islands og Iþróttakennaraskólann. Þingið telur, að skemmtanalíf unglinga eigi að vera óháð fjárplógssjónarmiðum og koma eigi í veg fyrir það, að beita þurfi misjöfnum fjáröflunaraðferðum til þess að standa straum af uppeldisstarfsemi æsku- lýðsfélaga, sem ætti að styrkja eins og skólastarf væri. Þá telur þingið að keppa beri að því, að reisa æskulýðsheimili og sumarbúðir sem víðast. 12 SKIN FAX I

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.