Skinfaxi - 01.12.1989, Blaðsíða 51
Þrastaskógur
framtíðarsýn
Nú liggja í fyrsta sinn fyrir hugmyndir fagmanna um þaö hvernig hægt er aö
nýta þessa gróðurperlu í Grímsnesi sem Tryggvi Gunnarsson, bankastjóri
meö meiru, gaf UMFÍ áriö 1911.
Svona lítur Þrastaskógur nœr allur nú út, séður úr lofti með Selfoss í baksýn. Þjónustumiðstöðin Þrastalundur og
Sogsbrúin til vinstri á miðri mynd. Neðst á myndinni er íþróttavölllurinn, einföld grasflöt. Til hægri við hann sést í
gamlan og lítinn bústað í eigu UMFÍ. Ljósmynd, Mats Wibe Lund.
Nefnd sú sem var skipuð á
stjórnarfundi UMFÍ í Vík í Mýrdal,
13.14. maí 1988 sem skyldi efna til
hugmyndasamkeppni um um
skipulag og notkun Þrastaskógar,
hefur lokið störfum. Afrakstur þess
starfs, hugmyndasamkeppni meðal
arkitekta, var sýndur á Sambands-
þingi UMFÍ í Mosfellsbæ 28. - 29.
október. Þar voru verðlaun veitt
fyrir bestu tillögurnar en niðurstaðan
varþessi:
1. verðlaun. Pálmar Krist-
mundsson og Björn Skaptason.
2. verðlaun. Jón Ólafur Ól-
afsson, SigurðurEinarsson og Þráinn
Hauksson.
3. verðlaun. Ragnhildur Skarp-
héðinsdóttir og Ögmundur Skarp-
héðinsson.
Einnig var tillaga þeirra Ingva
Þórs Loftssonar, Fríðu Bjargar
Eðvarðsdóttur og Marks MacFarlane
í formi innkaupa. Aðstoðarmaður
þeirra var Þorvaldur Pétursson. í
innkaupum felst að ef athyglisverðar
hugmyndir koma fram í tillögu er
leyfilegt er að notast við þær þegar
til framkvæmda kernur.
Fjórtán tillögur bárust i
samkeppnina og verður það að teljast
mjög góð þátttaka.
Markmið
keppninnar
Markmið hugmyndasamkeppn-
innar var fyrst og fremst að vinna
skipulag og notkun á svæði
Ungmennafélags íslands í
Þrastaskógi í náinni framtíð. Leitað
var eftir að ná fram sem
fjölbreytilegastri notkun svæðisins
fyrir almenning, sérstaklega hvað
Skinfaxi
51