Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Page 25
Nor-Fishing
Frá Simrad-deildinni á Nor-Fishing ’80.
Slíkur búnaður sem hér að framan
er lýst verður nauðsynlegur í nán-
ustu framtíð ef veiðarnar eiga að
vera hagkvæmar hvort sem um er
að ræða veiðar stórra nótaskipa
eða togara eftir loðnu, síld, kol-
munna, þorsk, makríl eða jafnvel
kríli á suðurheimskautsmiðum.
Simrad SIFS búnaðinn er að
sjálfsögðu hægt að byggja upp stig
af stigi og nota þau tæki frá Sim-
rad sem til staðar eru í skipunum,
svo sem Simrad sonar, dýptarmæli
o.fl. En fyrst og fremst byggir SIFS
búnaðurinn á nýjustu tækjunum
sem Simrad sýndi á „Nor-Fishing
’80“.
Svo við snúum okkur að sjálfum
Simrad SM 600 marggeislatrollsonar
ásamt Simrad CF 200 skermi.
Ljósmynd Simrad.
tækjunum þá ber fyrst að nefna
hinn nýja Simrad SM 600 marg-
geislatrollsonar sem sýnir mynd á
dagsljóssjónvarpsskermi. Stjórn-
andi tækisins getur til og með
prógrammerað sonarinn fyrir það
tungumál sem hann óskar. (Nú
munu vera fyri rliggjandi 4—5
tungumál.) Tækið og stjórnandinn
spyrja og svara hvort öðru við
notkun. Botnstykkið er svipað því
sem notað hefur verið í hinum
þekkta ST sonar.
Til að koma á móts við þær
kröfur sem koma til með að verða
gerðar við togveiðar á miklu dýpi
hefur Simrad þróað hinn nýja
Simrad ET 100 togdýptamæli.
Tækjunum er stjórnað af inn-
byggðum microprosessor. Stjórn-
andi spyr — dýptamælirinn svarar
og öfugt. Simrad ET 100 gefur
svar við öllum spurningum niður á
3400 m dýpi. Mjög auðvelt tæki í
notkun.
Hið nýja Simrad FR 500 troll-
auga fylgist með veiðarfærinu við
drátt. Mælitækið sjálft mælir hita-
stig og hinir þráðlausu magnmæl-
ar tækisins leyfa allt að 2500 m
fjarlægð frá skipi.
Nýr litskermur Simrad CF 100
er hægt að tengja m.a. eftirtöldum
tækjum frá Simrad! EQ og EK-S
dýptamælum og ET 100 og hinum
mjög svo fullkomna rannsókna-
dýptamæli EK 400.
Hinn þekkti litli Simrad SY
sonar er nú hægt að fá fyrir 2 mis-
munandi bylgjulengdir, þ.e. 80
kHz eða 190 kHz. Sá síðarnefndi
hefur mjög góða eiginleika varð-
andi það að hann truflast lítið við
hljóð frá vél og skrokk.
Hinn nýuppfundni rannsókna-
dýptamælir Simrad EK 400 ásamt
Simrad QD ættu í sameiningu
Simrad CF 100 litskermur.
Ljósmynd Simrad.
Simrad EK 400. Rannsóknadýptamælir
ásamt Simrad AR 850. Ljósm. Simrad.
VÍKINGUR
25