Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Síða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Síða 26
meira að segja fullnægja hinum kröfuhörðustu rannsóknarmönn- um. Sérstakur búnaður í magnar- anum gefur sama endurvarpsstyrk af sama magni af fisk hvort sem er á 5 m eða 300 m dýpi. Þetta þýðir að stjórnandi tækisins veit undir eins magn fisks sem dýptamælir- inn sýnir. Simrad QD getur lesið og talið magn endurvarps í sér- hverju lagi í sjónum. Lögin geta orðið allt niður í 3ja cm þunn. Microprosessorinn reiknar einnig út magn endurvarps í m3 sjávar. En Simrad býr ekki eingöngu til tæki fyrir stóru fiskiskipin. Svo- kölluð Skipper lína er ætluð fyrir trillur og smærri báta. Nýju dýptarmælarnir Skipper 405 og Skipper 406 virðast í fyrstu vera eins en í rauninni er töluverður munur á þessum tveimur tækjum. Er í rauninni um að ræða mini— útgáfur af Skipper 603 og 802 dýptamælunum. Skipper 406 er t.d. sá 4” dýptamælir sem gefur eigandanum flestar upplýsingar af öllum mælum í heiminum. Hann hefur innbyggt botnekspansjon, digital kvarða og nákvæmt botn- dýpi, 200 vatta sendistyrk o.s.frv. Hinir þekktu Skipper 802 og 603 eru ennþá betri. Þeir hafa 30 kHz og 50 kHz bylgjulengdir. Hin nýja Skipper AC hljóðrás sem er gerð fyrir þessa dýptamæla hefur reynst árangursrík við veiðar eftir tegundum eins og brisling, ufsa og síld. Stjórnandi tækisins heyrir hvenær er fiskur og þarf því ekki að fylgjast með mælinum allan tímann. Fyrir minni togara er Skipper Mini trollauga með lítilli kabal- vindu og sterkum grönnum kapli ánægjuleg tíðindi. Búnaður þessi hentar bátum allt niður í 40 fet. Fyrir stærri báta fæst Midi-kapal vinda með þá lengri kapli. Framboð Simrads af siglinga- tækjum er all víðfengið. Er hér um að ræða gervihnattamóttakara, lóran C, Logmæla, gyrokompása, 26 sjálfstýringar, veðurkortaritara og talstöðvar svo dæmi séu tekin. Ný kynslóð miðbylgju og VHF tal- stöðva frá TAIYO er nú fyrir- liggjandi en þetta er langalgeng- ustu stöðvarnar þar. Simrad sýndi einnig nýjan Simrad/Taiyo Lóran C sem hefur reynst ákaflega ná- kvæmur þar sem hann hefur verið reyndur en Decca staðsetningar- stöðvar eru mest notaðar við norsku ströndina. Skipper sjálf- stýring hefur þann kost að nú verður fyrir nær engum áhrifum Decca staðsetningartæki. Ljósm. Decca. Decca skrífari. Ljósm. Decca. P R E S E N T LRT 34 09.2? N POSITION LON 18 42.04 14 GMT 1939 DAY 143 SPD 10.2 HDG ; 228 LAST FIX LAT 34 14.16 N F 3 12 LON 18 35.50 14 GMT 1818 DAY 143 NEXT SAT «12 1948 22 WAY POINT LAT 32 00.60 N 9 LON 17 59.99 M RNG 134.2 CRS 164 status sat et« 0848 DAY 144 Útskrift frá Decca gervihnattar staðsetningartæki. Nor-Fishing frá tækjum sem um borð eru, og því hægt að staðsetja hana nær hvar sem er. Af framansögðu er ljóst að Simrad hefur mjög gott úrval tækja fyrir stærri fiskiskip og þokkalegt úrval fyrir minni báta en snúum okkur næst að öðrum merkjum. Decca í Englandi sýndi bæði tæki sem framleidd eru í Englandi og Noregi en í Noregi hefur Vopnaverksmiðjan í Kóngsberg framleiðsluleyfi fyrir Decca. í Noregi eru ma. framleidd Decca staðsetningartæki sem í grund- vallaratriðum virka eins og Lóran C. Einnig sýndi norska deildin decca-skrifara sem skrifa þá út siglingaleið skipsins (sjá myndir). Enska deildin sýndi hins vegar gervihnattarstaðsetningartæki (sjá mynd), þar sem sýnt er á skermi allar nauðsynlegar upplýsingar en einnig kemur útskrift á strimli sem hægt er að líma síðan inn í dagbók því útskriftin sýnir m.a. staðsetn- ingu í lengd og breidd, tíma, dag- setningu, hraða auk fleiri nauð- synlegra upplýsinga. Auk framangreindra tækja voru sýnd ýmis japönsk og amerísk og þýsk staðsetningar- og fiskileitar- tæki en höfundur þessara greina taldi ekki nauðsyn að rita sérstaklega um þau þar sem flest þessi tæki eru þekkt heima og framleiðendur þeirra hafa um- boðsmenn á íslandi. Taldi ég heppilegra að kynnast betur norskri framleiðslu. Þijú íslensk fyrirtæki sýndu VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.