Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Blaðsíða 43

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Blaðsíða 43
Stóð ég gleiður og reyndi eftir bestu getu að standa hinar snöggu óútreiknanlegu veltur, án þess að halda mér, enda þurfti ég að hafa báðar hendur á sextantinum. Annan fótinn gat ég þó skorðað við kompáshúsið, sem þó hýsti ekki framar neinn leiðarstein. Ég sá útundan mér að stýrimaðurinn stóð á bátaþilfarinu og hafði ekki af mér augun. Komst ég aldrei að því, hvort það var af umhyggju fyrir mér, ef ég skyldi falla fyrir borð, eða til að geta hlakkað yfir því að sjá mér mistakast. Nú nálgaðist örlagastundin óð- fluga. Satt best að segja var ég ekkert sérlega hreykinn af leikni minni með þetta verkfæri. Æfing- in mjög lítil í skólanum og engin eftir það. Jú sólin kom í ljós um tveim strikum sunnan við stefn- una. Nú, á mínútunni. Ég beygði mig í öðrum hnjálið og lét hann járna við kompáshúsið. En nú, einmitt á sama augnabliki þurfti dallurinn að taka eina af sínum frægu veltum, nákvæmlega eins og þegar hrekkjóttur hestur setur upp kryppu og hendir manni af baki. Ég reyndi að reikna veltuna út en það var hún sem reiknaði mig út. Einmitt þegar ég var að mjaka sólinni niður að sjóndeild- arhringnum, mátti ég gera eitt af tvennu, fljúga út í loftið og hafna á hausnum í Atlantshafinu eða snú- ast til varnar og grípa með báðum höndum í kompáshúsið. Það var eiginlega ekkert val. Sjálfsbjarg- arhvötin er nánast ósjálfráð og þar sem ég hafði aðeins tveim hönd- um yfir að ráða, varð ég að sleppa sextantinum. Og á þessu voðalega augnabliki lá við að ég skammað- ist mín, þegar ég sá að það var sextanturinn en ekki ég, sem skaust út í Atlantshafið. Þarna lá ég á maganum á kompáslausu húsinu og spriklaði með fótunum til að ná jafnvægi. Mér varð litið til stýrimannsins. Ég sá ekki betur en að á þessu annars grafalvarlega andliti, birtust einskonar bros- viprur. Jæja mér var fjandans sama, ég var að minnsta kosti inn- anborðs. Og hefði ég skutlast út- byrðis var ég ekkert of viss um, að hann hefði talið ómaksins vert að snúast í að fiska mig upp aftur. „Svona fór það“ sagði ég og reyndi að brosa. Ekkert svar, en ég komst ekki hjá því að sjá fyrirlitn- inguna í augum hans, líkt og hann vildi segja: „Þið haldið víst að þið séuð eitthvað, þessir græningjar.“ Á þessum árum var ég svolítið bráðlyndur að ekki sé meira sagt og ég varð að taka mér tak svo ég hlypi ekki á hann, hristi hann duglega og spyrði hvort hann væri mállaus. Eg fór inní brú og breytti stefnu um fjórar gráður til suðurs. Þetta var á aðfangadag. Á jóla- dagsmorgun var komið besta BRÉFABINDI STOLT MÚLALUNDAR OG SÓMI HVERRAR SKRIFSTOFU ★ Sterk og handhœg ★ Standa óstudd ★ Spara 20% hillurými ★ Bjartir litir ★ Skemma ekki hillur ★ Verðið hagsteett Ný hönnun sem stenst fyllilega ströngustu kröfur vandlátra múlalundur armúla34105reykjaviksimi384oo VÍKINGUR 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.