Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1980, Side 62
Endurbætur á
B.V. Hólmatindi SU-220
Fyrirtækið J. Hinriksson h.f.,
vélaverkst., vann á s.l. hausti að
viðbótum við vindukerfi b.v.
Hólmatinds frá Eskifirði. Settar
voru niður vökvadrifnar
grandaravindur, gilsavindur og
pokavinda, til viðbótar við þann
togbúnað sem fyrir var í skipinu.
Einnig smíðaði fyrirtækið og setti
niður skutrennuloku, sem einnig
er vökvadrifin.
Grandaravindurnar, sem eru
tvær, eru með einni tromlu hvor,
og er tromlumál 800 mm 0 X 320
mm 0 X 400 mm. Togátak er á 0
320 mm uppgefið 6.5 tonn, en
reyndist við prófun ca. 9.0 tonn.
Gilsavindurnar, sem einnig eru
tvær, eru með einni tromlu hvor,
og er tromlumál 500 mm 0 X 220
mm 0 X 400 mm.
Pokavindan, sem er ein, hefir
tromlumál 700 mm 0 X 300 mm
0 X 400 mm.
Allar vindurnar eru með Bauer
háþrýstimótorum. Útbúið var og
sett upp sameiginlegt drif-unit
fyrir allar vindurnar. í því er m.a.
þreföld Voith dæla, Strömberg
rafmótor 98 hö, Bauer aflöstunar-
loki, vökvatankur og fleira þar að
lútandi.
Grandaravindunum má
stjórna, hvort sem er úr brú eða af
spilgrind.
Skutrennulokan, sem er eins og
áður segir vökvadrifin, með tveim
vökvacylenderum, og gengur ofan
í sérsmíðaðan kassa í þilfari.
Skipið hefir þegar farið nokkrar
veiðiferðir eftir breytinguna, og
eru skipstjórnarmenn mjög
ánægðir með tækin.
Víst skrifar hann eftir hjálp dag-
lega, en hvernig vitum við hvort
hann gefur upp rétta lengdar- og
breiddargráðu.
En hvernig get ég vitað Senator,
hvort þú vilt kvænast mér af ást
eða vegna atkvæðisins?
62
VÍKINGUR