Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Page 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Page 40
Smasaáa Þá loks blrtlst fölur karl í vigtarskúrnum, band- aöi hendi og opnaði glugga: „ Vertu ekki með þessi læti drengur". Þorgeir skrúfaði niður rúðuna farþegamegin og kallaði, mannalega, eins og hann væri að hetna sín: „Á ég að hanga hér í alla nótt?“. Karlinn byrjaði að færa lóð á langri stöng. Það hlakkaði í honum, kannski varhann að hugsa upp eitthvað gott orðskot. Því öllum þótti gaman að stríða Þorgeiri. Erlendur lá á hnjánum yfir vélinni og blés í olíuslöngu. En hún virtist ekki stífluð, hann fékk bara olíu upp í sig. Hann skellti slöngunni á sinn stað og festi klemmuna með skiptilykli. Síðan stóð hann upp, stöðugt skyrpandi út úr sér, og byrjaði að hamast á svissinum. En díselmótorinn rumskaði ekki. Það kom ekki einu sinni reykur út um pústið. Það gusaðist upp í bátinn þegar stórar öldurnar komu brunandi á hlið á bátinn. Erlendur vissi að hann var kominn upp á grynningar þvi aldan reis hærra og hærra. Sjór íbotni bátsins skvettist fram og aftur og það sauð í, er vélin blotnaði. Hvað gat verið að helvítis vélinni? Erlendur heyrði í öldum sem brotnuðu á boðunum skammt frá, skugga- lega nálægt. Með grátsvein í kverkunum hamað- ist Erlendur á startaranum. Þá tók bátinn niðri með miklu brambolti og hræðilega sáru höggi. Erlendur kastaðist til, gremja og vonska yfirunnu allan ótta. Stór hvít alda fylgdi í kjölfarið. Þorgeir kveikti á útvarpinu í vörubílnum en upp spruttu sinfóníur svo hann slökkti með sama handtaki. Það var örlítið skárra þegar stytti upp svona inn á milli. Þá varð honum litið út um hliðarrúðuna og allt í einu sá hann rauðan bjarma hátt uppi, hinum megin við verbúðirna. Það var raketta og rauð sól sveif til jarðar. Þorgeir vissi að þetta var neyðar- blys. Vlndurinn bar sólina utan af firðinum. Hann skrúfaði niður rúðuna til að geta séð þetta betur og ein síðbúin snjóflyksa fauk í andlit hans. Þorgeir sá rauða sólina dingla neðan í fallhlíf- inni og hún barst inn yfir land. Hann fékk ónota- lega tilfinningu. Einhvers staðar við Akurey hafði neyðarrakettu verið skotið upp. Önnur snjóflyksa lenti í auga hans og kældi það óþægilega. „Áfram með þig, hvað eru að hugsa“, öskraði vigtarmaðurinn út um gluggann. Þorgeir hrökk i kút, greip í sturtuhandfangið og gaf í botn. „Nei, nei, hvað ertu að gera“, öskraði vigtar- karlinn og fórnaði höndum. Þorgeir var alveg utan við sig. Upp í himninum var neyðarljós. Hann flýtti sér að fella pallinn og reka í gír. Bíllinn hikstaði af stað og fiskslatti hrundi í götuna. „Andskotans klaufabárður", kallaði vigtarmað- urinn og hlakkaði til að geta sagt frá þessu. Þorgeir opnaði glerhurðina á stóru húsi Slysa- varnafélags íslands. Hann kom inn ílítið herbergi þar sem allt var fullt af stórum radíótalstöðvum. Þar sat maður með feitt hár og hafði hallað sér aftur í gamlan tré stól, fætur hans voru uppi á borði og hann hafði míkrafón í hendi, eins og Þorgeir væri að trufla samtal. „Hvað get ég gert fyrir þig?“, sagði maðurinn, snöggt. „Ég held ég hafi séð neyðarblys", sagði Þor- geir og reyndi að þurrka storknað slor af höndun- um í buxurnar. „Já, þú heldur að þú hafir séð neyðarblys", sagði maðurinn og ruggaði sér í stólnum. „Já“, sagöi Þorgeir, og vissiað nú myndi hann fara að stama. Maðurinn horfði á Þorgeir. „Og hvernig neyðarblys?". Og nú byrjaði Þorgeir að stama. Það skeði alltaf ef hann talaði við svona menn sem reyndu að sýnast miklu stærri en aðrir. Því þá óttaðist hann um sitt eigið sjálfstæði. Honum hafði alltaf verið strítt í skóla og þá stamaði hann enn þá meira. Þess vegna varð skólaganga hans minni en annarra. Og alltafhafði hann lent í skítverkun- um; sóga gólf og fara út með rusl. Því var vörubíll- inn honum allt. „Það var svona rauð sól í fallhlífsem kom utan af hafi, í átt frá Akurey".
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.