Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1987, Side 112
Verður kallinn
■ ■ ■
Brú í nýtísku togara,
Sléttbak frá Akureyri.
Skipin veröa úti
færri daga,
fiskurinn fer
ferskur á markad
meö flugvélum.
Vinnslan veröur
eflaust sjálfvirk.
112 VÍKINGUR
tövluframleiðandans og talaði
við Þorstein Þorsteinsson, for-
stöðumann tæknisviðs hjá
IBM:
„Iðnaðarútgáfa af PC tölv-
unni frá okkur hefur þegar verið
sett í nokkur skip. Iðnaðartölv-
an þolir meira hnjask heldur en
aðrar tölvur og hefur til dæmis
verið sett í Sjólann frá Hafnar-
firði. Þar safnar PC tölvan sam-
an upplýsingum frá Marel vigt-
unarkerfinu og vinnur úr þeim.
Hins vegar held ég að það sé
engin spurning að öflug móður-
tölva mun koma um borð í skip-
in. Spurningin er bara um tíma.
Hún mun safna saman upplýs-
ingum til dæmis frá vigtuninni
og frá nemum í vélarrúmi skips-
ins og gera viðvart þegar eitt-
hvað kemurfyrir. Til að eitthvað
raunverulegt gerist í þessum
efnum verða samt að koma til
staðlar og þeir munu koma“.
Tölvutæki við
vinnslu fisks
Hvað er hægt að tölvuvæða
þarna?, gæti einhver spurt sig.
Reyndar margt og nú þegar
þekkjum við vogarkerfi frá
Póls-tækni og Marel. Með
þessum kerfum er auðveldlega
hægt að fylgjast með magni,
þyngdarflokkum, pakkningum
og öðru því sem að gagni getur
komið þegar fiskurinn er unn-
inn. Þessi vogarkerfi hafa nú
þegar verið tengd við tölvur í
brú skipsins, til dæmis PC tölvu
sem gefur skipstjórnendum
mjög gagnlegar upplýsingar
um veiðina. Ég talaði viö Geir
A. Gunnlaugsson fram-
kvæmdastjóra Marels: „Hing-
að til höfum við einbeitt okkur
að vogarkerfunum og selt þau
út um allan heim. Ég býst við
því að vinnslan muni nú fara út í
skipin að meira eða minna
leyti. í landi mun fyrst og fremst
verða unnið með ferskan fisk
enda mun neysla hans aukast.
Vinnsla ferskfisks um borö
mun einnig aukast. Ég er hins
vegar ekki mjög hlynntur hug-
myndinni um móðurtölvu. Ég
held frekar að við munum sjá
margar minni tölvur tengdar
saman með neti og vogarkerfið
okkar verði hluti af því. Mikil-
vægi stóru tölvanna er nefni-
lega að minnka. Við höfum
heyrt hugmyndir Háskólans í
þessu efni en ég held að þetta
verði ekki þróað með einhverri
miðstýringu í Háskólanum. Það
verður að gerast af einhverjum
sem sér hagnaðarvon í þessu
og af þeim drifkrafti sem sú von
gefur. Það að dunda við þetta í
Háskóla íslands er töluvert
annað en að framleiða á verði
og við gæði sem menn eru til-
búnir að borga fyrir.
Marel og framtíðin
í framtíðinni mun margt breyt-
ast. Tökum árið 2000 sem
dæmi. Hvað sjáum við þá ? Ég
held að tæknin þá verði ekki
eins byltingarkennd og margir
halda. Þá verðum við búnir að
ná betra valdi á tækni dagsins í
dag og vinnslan verður um
borð í stórum skipum. Skipin
verða úti færri daga, fiskurinn
fer ferskur á markað með flug-
vélum. Vinnslan verður eflaust
sjálfvirk. Fiskurinn verður flak-
aður og pakkaður sjálfvirkt. Við
munum sjá tæki sem flokka
fiskinn bæði eftir tegundum,
stærð og í haus- og sporð-
stykki. Þarna munum við notast
við myndgreiningu sem Marel
er til dæmis að þróa. Mynd
verður tekin af fiskinum og hún
greind ítölvu. Tölvan mun einn-
ig greina hvort flak er skemmt
og ef svo er þá kippa því út.
Ormaleitin verður líka sjálfvirk
þótt það verði vafalaust erfitt að
þróa þá tækni en það mun tak-
ast“.
Vélar og vinnsla
Aðrar vélar sem notaðar
verða við vinnsluna verða vafa-
laust líka tölvustýröar, til dæm-
is frystivélar. Ég talaði viðTorfa
Leifsson hjá Rafhönnun en
hann hefur unnið að þróun