Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Blaðsíða 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Blaðsíða 23
biðji afsökunar „Best að hann biðji afsökunar“ í skjölum grænfriðunga kemur einnig fram að Magnús Guðmundsson hafði engan rétt til að nota það myndefni opin- berlega sem hann fékk hjá Greenpeace Communications Limited. „Ef Magnús leggur ekki fram sannanir fyrir því sem hann segir í myndinni höfum við hugsað okkur að þvinga hann til þess. Líklega í gegnum dómstól í einhverju landi. Við athugum núna hvernig best er að snúa sér, því þetta er nokk- uð stórt og alþjóðlegt mál. Það myndi kosta okkur mikið að senda fólk frá öllum heiminum til þess að bera vitni. Það er því erfitt að meta hvort við eigum að taka peninga frá öðrum verkefnum og leggja þá í réttar- höld og þar með stoppa barátt- una fyrir t.d. kjarnorkulausu hafi í bili. Auðvitað höfum við tryggingarfé í banka en það er ekki meiningin að nota það fé í svona mál. Það væri því best ef Magnús bæðist afsökunar á myndinni. Það held ég líka að hann geri eftir að ég hitti hann að máli. Við höfum engan áhuga á að græða peninga á þessu máli, það eina sem við viljum er að einhver standi upp og segi: Afsakið, ég hafði rangt fyrir mér.“ í sannleikans nafni Jacob Lagerkrants sagði að grænfriðungar ætluðu að halda áfram að beita efnahagsþving- unum í baráttunni gegn hval- veiðum íslendinga sem hann telur ólöglegar og ósamþykktar af Alþjóðahvalveiðiráðinu. Þessu til stuðnings lagði hann fram skýrslu hvalveiðiráðsins frá 22. -26. júní 1987. Þar stendur skýrum stöfum að Al- þjóðahvalveiðiráðið telji að hvalveiðar (slendinga i rann- sóknarskyni séu óþarfar og því beri íslendingum að stöðva veiðarnar.,, Til að allur sannleikur komi fram er best að taka það fram að íslendingar geta haldið áfram veiðunum, það eru ekki til nein lög sem geta stöðvað hvalveiðarnar. Alþjóða hval- veiðiráðið getur aðeins beðið um að veiðar séu stöðvaðar. Um siðferðilega skyldu! Ég hef séð úrklippur úr ís- lenskum blöðum, þar sem greint er frá því að þegar sjáv- arútvegsráðherra íslands kem- ur heim frá fundum Alþjóða- hvalveiðiráðsins, segir hann frá því að ísland hafi fengið góðar viðtökur og að hvalveiði- ráðið styðji hvalveiðarnar. í rauninni hafði hvalveiðiráðið beðið ísland að stöðva veið- arnar,“ sagði Jacob Lager- krants, sem einnig heldur því fram að engar raunhæfar heimildir séu til um stærð hval- astofnsins. Þess vegna var ákveðið af Alþjóðahvalveiðir- áðinu að stöðva veiðarnar í óá- kveðinn tíma. Hvalastofninn skyldi rannsakaður og síðan ákveðið hvort veiðar yrðu leyfðar að nýju árið 1990. Grænfriðungar telja það sið- ferðilega skyldu hverrar þjóðar að fylgja alþjóðlegum sam- þykktum. Á þessum rökum byggja þeir baráttu sína gegn halveiðum íslendinga. Stórgróði í gögnum sem Lagerkrants hafði meðferðis kemur fram að grænfriðungar söfnuðu 4,5 milljónum dollara (jafnvirði um 240 milljóna ísl.kr.) í Bandaríkj- unum einum á tímabilinu frá júní 1982 til jafnlengdar 1983, eingöngu á áróðri fyrir sela- og hvalavernd. Spurningunni um hvort rétt væri að í Svíþjóð hefði safnast um ein milljón sænskra króna á sama tíma í sama til- gangi færðist hann undan að svara, en sagði: „ Tölur um hversu miklu samtökin hafa safnað í heild eru getgátur ein- ar.“ í lok samtalsins neitaði Jacob Lagerkrants því að grænfriðungar heföu í hyggju að reyna að stöðva fiskveiðar. „Ef Magnús leggur ekki fram sannanir höfum við hugsað okkur að þvinga hann til þess“. Björn og Halldór hf. Síðumúla 19 - Símar: 36030-36930 Einkaumboð fyrir: VÍKINGUR 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.