Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Blaðsíða 41
NVJUNGAR
TÆKNI
skipstjórnarmenn hafa alltaf
viljað fá en er nú loksins fyrir
hendi í Northstar 9000. Með
hinum einstæða,, fastscanner"-
takka getur skipstjórnarmaður-
inn séð alla leiðarpunktana í
minninu í sjónhendingu, en
tækið finnur sjálft og endur-
skoðar óbeðið þá 30 leiðar-
punkta sem næstir eru stað
skipsins og birtir þá á skjánum
svo að skipstjórinn geti fundið
þá sem hann vill án tafar.
Northstar 9000 hefur minni
fyrir 300 leiðarpunkta sem rað-
ast af sjálfu sér í rökrétta röð
svo að auðvelt er að finna og
nota einn leiðarpunkt í einu eða
raða þeim í varanlegar sigl-
ingaleiðir. Hægt er að geyma
allt að 100 leiðir. Hverri leið er
gefið nafn og þær er hægt að
kalla fram tafarlaust með„
fastscanner“-takkanum. Að
sögn framleiðanda er þetta nýj-
asta tölvutækni við að kalla
fram upplýsingar. Hnappaborð
verður nær óþarft. Með
Northstar 9000 er hægt að
fylgja siglingaleiðinni í hvora
Loran C neminn 9100 nemur
merkin frá loranstöðvunum.
áttina sem er eða geyma þá
leið sem skipið fer í raun og
veru, gera siglingaáætlun eða
fá sjálfkrafa fram á skjáinn fjar-
lægð og miðun frá einum leið-
arpunkti til annars. 9000-tækið
gerir skipstjóranum kleift að
nefna og geyma staðsetningu
hættusvæða, kletta, grynninga
o.þ.h. og ef skipið kemur of
nærri þessum stöðum fær
hann sjálfkrafa aðvörun. Til að
auðvelda skipstjóranum að
gefa upp nákvæman komutíma
hefur 9000tækið aðgerðina Ti-
deTrack, sem gefur honum
upp tímasetningu næsta flóðs
og fjöru á tíu stöðum sem skip-
stjórinn tiltekur sjálfur. Hann
getur fundið hvenær flóð og
fjara verður á þessum 10 stöð-
um einhvern tímann seinna svo
og sólarupprás og sólsetur.
Hvort sem notuð eru loran C-
merki eða GPSmerki eða bæði
er hægt að tengja 9000-tækið
við önnur siglinatæki, svo sem
radar, sjálfstýringu, skjákorta-
rita eða einkatölvu. Loran C-
neminn 9100 er mjög næmur
og getur náð og haldið inni
mjög daufum merkjum, hann
getur unnið úr merkjum frá
þrem lorankeðjum samtímis og
velur sjálfur besta möguleik-
ann með tilliti til hvernig loran-
línurnar skerast. Loran 9100
neminn tekur bæði á móti jarð-
bylgju (groundwave) og loft-
bylgju (skywave), greinir þær
að og notar báðar. Þetta
stækkar verulega svæðið þar
sem hægt er að ná loran C
merkinu þótt jarðbylgjumerkið
sé mjög dauft. Vegna þess hve
Northstar 9000 er duglegur við
að ná daufum merkjum þarf
hann ekki nema örstuttan tíma
frá því að kveikt er á honum og
þar til hann er búinn að ná stað-
Eigum nú til á
lager, takmarkaö
magn af
„RÆKJCl-
KÖSSUM", 33 Itr.
— einnig „FISKI-
KÖRFUR", 45 ltr.
rúmtaki.
— Hringið og fáið
frekari
upplýsingar.