Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Blaðsíða 27
náttúruvernd. Forustumaður í
þessum skóla er Michael Gyll-
ing Nielsen, sá sem stjórnar
aðgerðum í Norðurhöfum.
Hann er nú í Moskvu í sex mán-
aða verkefni við að koma upp
samstarfi við sovésk stjórnvöld
um þennan skóla. Þetta er auð-
vitað gert undir voða fallegum
formerkjum og allt það, en
stjórnvöld í Moskvu eru búin að
lofa Greenpeace 25 milljóna
dollara greiðslu fyrir rokkplötu,
sem Greenpeace er að gefa út í
Sovétríkjunum. Helmingurinn,
12,5 milljónir dollara, verður
greiddur til Greenpeace í sum-
ar, en hinn helmingurinn á að
renna til stofnunar í Moskvu,
sem tengist þessum skóla og
er undirdeild í Heimsfriðarráð-
inu.
Setur að manni
svolítinn hroll
Þetta er mjög merkilegt mál.
Heimsfriðarráðið er undirdeild í
KGB, það vita allir. Það fer ekki
hjá því að maður velti vöngum
yfir samhenginu milli þessara
hluta og kerfisbundinna og
skipulagðra árása Green-
peace á löndin fjögur í Norður-
höfum undir forustu sama
manns. Maður hlýtur að spyrja:
Hvað er að gerast? Ég veit ekk-
ert hvað er að gerast, en óneit-
anlega setur að manni svolítinn
hroll.
Vond og minna vond
kjarnorka
Og annað. Greenpeace er
búið að undirbúa mikil mótmæli
við komu bandaríska herskips-
ins lowa, sem búist er við að
komi inn í Eystrasalt í júní.
Reynt verður með öllum ráðum
að koma í veg fyrir að það kom-
ist inn í Eystrasaltið. Á sama
tíma eru kjarnorkuknúin her-
skip Sovétmanna að vandra út
og inn i Eystrasaltiö eins og
ekkert sé. Greenpeace er kom-
ið með skrifstofu í Moskvu og
þá vaknar spurning um hvort
þeir ætli að koma í veg fyrir að
kjarnorkuknúin herskip Rússa
sigli út úr Murmansk, eins og
þeir eru að reyna að koma í veg
fyrir að kjarnorkuknúin skip Na-
toríkjanna sigli úr höfn í Evrópu.
Umfangsmikill
mótmælaiðnaður
Spurningarmerkin eru mörg.
Hvað eru þessi samtök að
gera? Hvað vakir fyrir þeim?
Þetta er ekkert í tengslum við
náttúruvernd, þetta er eitthvað
allt annað“.
— Hvert er þitt svar við
þessum spurningum?
„Það kemur væntanlega í
næstu mynd“.
— Ertu að gefa í skyn að
Greenpeace sé ekkert orðið
annað en viðskipti?
„Ekkert annað. Þetta er um-
fangsmikill mótmælaiðnaður
og spurningin er um það hver
borgar best“.
Ný kæra
Ný truflun. Magnúsi er rétt
telex, sem var að berast frá lög-
mönnum á Englandi, sem hóta
málaferlum á hendur Magnúsi
fyrir hönd Greenpeace, vegna
notkunar hans á myndefni úr
mynd grænfriðunga, Bitter
Harvest, í mynd sína.
„Þetta er allt í lagi“, segir
Magnús hinn rólegasti. „Þetta
er sama málið og fógetaréttur á
íslandi vísaði á bug í lögbanns-
málinu, rétt áður en myndin var
sýnd í ríkissjónvarpinu. Við höf-
um skriflegt leyfi frá Green-
peace til að nota myndina, svo
þeir verða þá að sanna að leyf-
ið sé ekki fullnægjandi. Ég hef
engar áhyggjur af þessu“.
sigur
— Örlítið um hvernig þér
hefur gengið að standa undir
þessu öilu, fjárhagsiega.
„Illa. Vonandi kemur þetta
inn einhvern tíma seinna, en
þetta hefur verið mjög erfitt.
Húsið mitt var á uppboði fyrir
hálfum mánuði, vegna þessa.
Það var annað uppboð en ég
vona að ég fái nægan frest til
að bjarga því áður en það fer á
það þriðja og síðasta. Þetta
hefur verið afskaplega þungt
og ég hefði aldrei farið út í þetta
hefði mig grunað hvað það
þýddi. Myndin varð miklu dýrari
en ég bjóst við og dreifingin á
henni er líka feikilega dýr, ég
tala nú ekki um eftir að þetta
varð svona stríð við Green-
peace, þar sem ég er á flakki
um allan heiminn. Allt sem hef-
ur komið inn fyrir myndina hef-
ur farið beint í kostnað aftur við
að slást við þá hingað og þang-
að. Ætli það endi ekki með því
að þeir sigri með því að ég verði
gjaldþrota, það yrði ódýr sigur“.
>VELA OG TÆKJAh
MARKAÐURINNf
KÁRSNESBR. 102A s 64 14 45
----FR*5IVÉIAr
NÝJAR OG NOTAÐAR
EINNIG TÖLVUSTÝRÐAR
VÍKINGUR 27