Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Blaðsíða 46
TÆKNI
Mynd 1
IVIynd 1B
Mynd 2
Mynd 3
46 VÍKINGUR
NXJUNGAR
Stórar hæggengar
skipsskrúfur
Stórar hæggengar skips-
skrúfur gefa mun betri nýtni en
litlar hraðgengar skrúfur. Al-
gengt er nú, í stærri skipum, að
hafa snúningshraða skrúfunn-
arnálægt100sn/mín. (nýbygg-
ingum er tekið fullt tillit til þessa
atriðis og eins hefur verið reynt
að koma fyrir stærri skrúfum í
eldri skipum en það hefur oft í
för með sé kostnaðarsamar
breytingar á skut skipsins,
skrúfuás og gír.
Skrúfuhringir
Skrúfuhringir hafa verið mik-
ið notaðir á íslenskum fiskiskip-
um um árabil og bæta þeir nýtni
skrúfunnar verulega á togi og
við veiðar. Aftur á móti eykur
skrúfuhringurinn mótstöðu
skipsins á siglingu og getur því
haft áhrif til hins verra í því til-
viki.
Á SMM sýningunni í Ham-
borg í sept. ’88 sýndi AEG og
Jastram skrúfu í skrúfuhring
með mjög sérstæðum drifbún-
aði. Yst í endum skrúfublað-
anna er komið fyrir síseglum en
í skrúfuhringnum er komið fyrir
rafvöfum tilsvarandi og í sátri
samfasa mótors. Með þessu
fyrirkomulagi er skrúfuás
óþarfur og algert frjálsræði ríkir
gagnvart staðsetningu aðal-
véla og öll afrétting verður ein-
faldari í framkvæmd. Hinsveg-
ar verða töpin í aflyfirfærslu frá
aðalvélum að skrúfu meiri.
Spyrnur og
tvískrúfur
I tengslum við olíuborpalla-
starfsemi hefur þróast sérstök
tegund af skrúfubúnaði, svo-
kölluð spyrna (thruster), sem er
skiptiskrúfa í skrúfuhring þar
sem aflyfirfærslan fer um tvö-
falt vinkildrif. sjá mynd nr. 2.
Þessa skrúfu er einnig farið
að nota í skip þar sem miklar
kröfur eru gerðar um nákvæma
stjórnun og staðsetningu
skipsins við þröngar og erfiðar
aðstæður. Er þá oft notast við
fleiri skrúfur og fæst þá mjög
góð og örugg stjórnun skipsins.
Skrúfu ásamt skrúfuhring má
snúa um lóðréttan ás og þjónar
hún því einnig hlutverki stýris-
blaðs og stýrisvélar. Spyrnan
er talin hafa nokkuð lélegri
nýtni en hefðbundinn skrúfu-
búnaður.
í K.M.W. í Svíþjóð er verið að
gera rannsókn með að stað-
setja spyrnu fyrir aftan venju-
lega hefðbundna skrúfu og á
hún að snúast í gagnstæða átt
miðað við skrúfuna og er þá
stýrisblaði sleppt enda spyrnan
notuð sem stýri. Með þessu
móti er talið að hægt sé að
auka nýtni skrúfubúnaðarins
nokkuð og byggir það fyrst og
fremst á því að hringiðumynd-
un verður minni í kjalsogi og
nýtist aflið því betur til hreinnar
framdriftar. Aðalskrúfan og
spyrnan starfa því saman sem
tvískrúfa. Mynd nr. 3 sýnir nið-
urstöðurtilraunar (K.M.W.) þar
sem samanburður er gerður á
venjulegri einfaldri skrúfu (con-
ventional) og skrúfum sem
snúast í gagnstæðar áttir (CR-
system, counterrotating) þ.e.
tvískrúfu.
Lóðrétti ásinn á línuritinu er af-
stæð aflnotkun og sá lárétti er
afstæð siglingarmótstaða. Af
línuritinu má sjá að þetta gefur
umtalsverða aukningu á nýtni
og er talað um að hún sé á
bilinu 8 -12%.