Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Blaðsíða 42
TÆKMI
HyJUMGAR
Fastscanner-takkinn
sem er framan á stjórn-
einingunni, stýrir með
segulsviði en ekki raf-
straumi.
setningu auk þess sem öll úr-
vinnsla er mjög hröð svo að all-
ar hraða- og stefnubreytingar
og staðsetningar koma fram
örskömmu eftir að þær hafa átt
sér stað. Allir sjómenn vita að
álag á loftnet og annan búnað
úti við á skipum er mikið í vond-
um veðrum. Það er því mikið
atriði að þessir hlutir séu fyrir-
ferðarlitlir til að þeir taki sem
minnst á sig. Loftnetið fyrir
Northstar 9000 er hannað með
tilliti til þessa og er því ekki
nema 72 sm að lengd ásamt
tengingu (Mini Coupler).
Stjórneiningin Northstar 9400
er algerlega vatnsþétt að sögn
framleiðanda. Árið 1992 er
áætlað að GPS-gervitungla-
kerfið verði tilbúið til almennrar
notkunar og þá þurfa eigendur
Northstar 9000 ekki annað en
að stinga GPS-9200 nemanum
í samband við stjórneininguna
Northstar 9400 og nota hann
ásamt loran C9100 nemanum.
Hér kemur lítiö dæmi um
hvernig hægt er að nota
Northstar 9000: Gerum ráð
fyrir að skip sé á leið inn
Breiðafjörð á leiðinni frá
Reykjavík til Sykkishólms.
Þetta er að hausti til og allir vitar
og dufl lýsa eftir að dimmt er
orðið. Skipstjórinn hefur ekki
farið þessa leið áður en á þó í
fórum sínum leiðarpunkta sem
hann hefur safnað sjálfur eða
fengið frá kunningjum. Hann
treystir ekki á leiðarpunkta sem
hann tekur upp úr sjókortinu,
veit að réttri landfræöilegri
stöðu ber ekki saman við af-
lestur af lorantækinu á sama
stað. Áður en farið er úr
Reykjavík undirbýr skipstjórinn
siglinguna. Hann þrýstir fyrst á„
help“-takkann til að fá frarn,,
siglingaáætlun" og flettir síðan í
gegnum nákvæmar leiðbein-
ingar um siglingaáætlun og
innskrift hennar í minniseiningu
tækisins. Hann þrýstir á
„waypoint" og flettir upp á þeim
leiðarpunktum sem hann vill fá
fram á skjáinn og ætlar að nota
á leiðinni og raðar þeim saman.
Hann gefur leiðinni nafnið
Reykjavík - Stykkishólmur.
Þegar skipið er komið fyrir
Öndverðarnes þrýstir skipstjór-
inn á „waypoint" takkann og
flettir síðan upp á þeim leiðar-
punkti sem hann ætlar að sigla
til næst, sem í þessu tilfelli er
tvær sjómílur norður af Selskeri
og þar ætti vitinn í Höskuldsey
að vera hvítur. Til að reikna
komutíma til Stykkishólms flett-
ir hann upp í TideTrack og
kannar þannig hvernig sjávar-
fallastraumarnir stefna og tek-
ur það með í reikninginn. Til að
átta sig á því hvenær birtu sé
farið að bregða það mikið aö
hann eigi von á því að sjá vit-
VEIST ÞU
Að um vogina þína fara mikil verðmæti og að
röng vog getur þýtt fjárhagslegt tjón fyrir þig.
Löggilding er viðurkenning á
gæðaframleiðslu og nákvæmni.
Er vogin þín löggilt?
Gættu aö því!
LÖGGILDINGARSTOFAN
The lcelandic Bureau of Legal Metrology
SlÐUMÚLA 13 - PÓSTHÓLF 8114 - IS-128 REYKJAVlk