Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Blaðsíða 44
MXJUMGAR
TÆKMI
Alþjóöasiglingamálastofn-
unin (IMO) hefur sett staðal
fyrir ratsjár í skip minni en
10.000 rúmlestir. Japanska
fyrirtækið Furuno hefur nú sett
á markaðinn radar sem upp-
fyllir staðal IMO. Radar þessi
gengur undir nöfnunum FR
2010 og FR2020. FR 2010 hef-
ur 10 kw sendi og dregur 72
sjómílur, en 2020 hefur 25 kW
sendi og dregur 96 sjómílur.
Skjárinn er dagsbirtuskjár og
myndlampi af raster-scan
gerð. Radarendurvörp eru
skærgul en bakgrunnur svartur
eðablár. Blár fyrir dagsbirtu, en
svartur fyrir myrkur. Allar upp-
lýsingar sem koma fram á
skjánum og er raðað kringum
radarskjáinn eru í öðrum litum.
Flókinn tölvualgorithmi er not-
aður til að gera endurvörp
greinilegri, svo sem stækkun
endurvarpa (Echo Stretch),
fylgni endurvarpa (Echo
Average), og sjálfvirkur trufl-
anadeyfir, en þetta allt er til að
auka möguleika á að ná dauf-
um endurvörpum og er að sjálf-
Tölvuradarinn frá Fur-
uno. Handföngin utan á
tækinu er hægt að fá
með radarnum ef kaup-
andi óskar þess, en hlýt-
ur að vera mjög æski-
legt.
sögðu mikið öryggisatriði. Af
sama toga er útreikningur á því
hvenær endurvarp er næst eig-
in skipi (CPA), hvenær það á
sérstað (TCPA), raunstefnaog
raunhraði endurvarpsins, fjar-
lægð til þess og miðun og rat-
sjárútsetning á hreyfingu þess
yfir radarskjáinn. FRradartæk-
in geta unnið upplýsingar um
allt að 10 endurvörp hverju
sinni. Á radarskjáinn erteiknað
viðvörunarsvæði og komi end-
urvarp inn á það svæði gefur
radarinn frá sér hljóðmerki.
Þetta allt auðveldar skipstjórn-
armanni að gera sér grein fyrir
árekstrarhættu og að bregðast
við henni fljótt og örugglega.
Uppröðun takka sem flestir eru
snertitakkar er athyglisverð og
mjög rökrétt. Takkar sem mikið
eru notaðir, svo sem rafeinda-
miðunarlínan (EBL) og lausi
hringurinn (VRM) eru neðar-
lega eða nálægt notandanum
sitt hvoru megin við skjáinn. Af-
lesturinn birtist svo á skjánum
við hliðina.
Samkvæmt upplýsingum
framleiðanda er mælingarná-
kvæmni í fjarlægðarmælingu
0,8% af fjarlægðarkvarða í
notkun eða 7m eftir því hvort er
stærra. Nákvæmni í miðun er
+-1° en aflestrarnákvæmni
með EBL er 0,1°. Umboð fyrir
Furuno hér á landi hefur Skip-
aradíó hf., Fiskislóð 94,
Reykjavík.
Útgerðarmenn — vélstjórar.
Önnumst allar raflagnir og viógerðir í bátum, skipum og verk-
smiðjum. Áratuga þjónusta við íslenskan sjávarútveg tryggir
reynslu og öryggi frá sérþjálfuðu starfsfólki.
Dagsbirturadar