Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1989, Blaðsíða 54
Utan úi' hcimi
Hilmar
Snorrason
skipstjóri
Einn góður á um 80 millj-
ónir dollara.
Secil Angóla fórst á leið
til fslands með saltfarm
en systurskip þess fórst
skömmu síðar.
54 VÍKINGUR
Skipasmíðar
Meðalaldur flutninga- og
olíuskipaflota heimsins hefur
hækkað talsvert og má segja
að sú staðreynd sé frekar leið-
inleg fyrir skipasmíðastöðvar.
En sá dagur mun koma að end-
urnýjunar verði þörf i stórum stíl
og óttast menn að erfitt verði að
koma á jafnvægi þegar sá dag-
ur rennur upp. Þó hafa ýmis
skipafélög hugsað til endurnýj-
unar. Nýlega gerði Pólska
gufuskipafélagið stóran smíða-
samning við þarlendar skipa-
smíðastöðvar er það pantaði
24 flutningaskip milli 10 og
20.000 tonn og skulu þau af-
hendastátímabilinu1991 til 94.
Petrobras sem er ríkisolíufé-
lagið í Brasilíu hefur tilkynnt að
á næstu átta árum ætli þaö að
láta smíða 34 tankskip, sam-
tals 3,2 milljónir tonna, hjá þar-
lendum skipasmíðastöðvum.
Skipin verða af stærðargráð-
unni 30.000 og upp í 280.000
tonn.
Japan
Loks kom að því að Japanir
tækju þátt í slagnum á
skemmtisiglingamarkaðnum
því að í júlí á næsta ári mun
NYK-línan fá afhent skemmti-
ferðaskip ætlað til úthafssig-
linga. Skipið verður um 50.000
Þetta stærsta gámaskip heims-
insfær brátt aukna samkeppni úr
öllum áttum.
brúttótonn að stærð og á að
taka um 960 farþega, allt í
tveggja manna klefa. Til að
byrja með fer það fjórar ferðir
milli Alaska og San Francisco
en að þeim loknum fer það eins
og önnur skemmtiferðaskip í
Karabíska hafið þar sem áætl-
að er að farnar verði allt að 30
ferðir til ársloka.
Skipaverðlisti
Hvernig væri nú að gerast út-
gerðarmaður og láta smíða
fyrir sig í Japan svo sem eitt
stykki? Nýjasti verðlistinn frá
Japan sem miðar að afhend-
ingu fyrri part árs 1991 hljóðar
svo: 40.000 dw efnaflutninga-
skip á 30,5 milljónir dollara,
97.000 dw tankskip á 38,5 millj-
ónir dollara, 140.000 dw tank-
skip á 48 milljónir dollara og ef
þú vilt verða stórtækur þá er
verðið á 280.000 dw tankskipi
um 80 milljónir dollara. En ef
viö ætlum að fara í stórf lutninga
þá er verðið á búlkurum:
27.000 dw á 20 milljónir doll-
ara, 64.000 dw á 26,5 milljónir
dollara og 120.000 dw á 42,5
milljónir dollara.
Skipatapar
Nýlega fórst flutningaskip
skráð í Panama um 300 mílur
vestur af Skotlandi. Þessi skip-
stapi hefði ekki þótt fréttnæmur
hér á landi nema vegna þess
að skipið Secil Angola sem var
4.842 dw tonn, var á leið frá
Spáni til íslands fulllestað af
salti. Öll áhöfn skipsins, sau-
tján að tölu, fórst. Tæpum mán-
uði síðar fórst systurskip þess
Secil Japan suður af írlandi en
þar tókst betur til um björgun
áhafnarinnar því einungis einn
maður fórst.