Náttúrufræðingurinn - 2005, Side 60
Náttúrufræðingurinn
Hjálmar R. Bárðarson
SjÓKÆLING Á
HRAUNRENNSLI
1. mynd. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-EIR lent í Surtsey. Þorbjörn Sigurgeirsson
t.h., þyrluflugmaðurinn t.v. - The helicopter TF-EIR landed in Surtsey. Professor
Thorbjörn Sigurbjörnsson (right), and the pilot (left). Ljósmynd/Photo: Hjdlmar R.
Bárðarson.
2. mynd. Pálsbær, eldra hús Surtseyjarfe'lagsins, ígilinu við lónið. - Pálsbær the old hut
ofthe Surtsey Research Society. Ljósmynd/Photo: Hjálmar R. Bárðarson.
Þorbjörn Sigurgeirsson prófessor
vakti máls á því eftir að hraun hafði
runnið í Surtsey að reynt yrði að
breyta stefnu hraunrennslis með
kælingu, enda væri þar nægur sjór
nálægt eldgosi. Fyrsta tilraunin var
skipulögð og gerð í Surtsey undir
stjóm Þorbjörns dagana 7. og 8.
janúar 1967. Tilraunin heppnaðist
vel og varð árangursrík reynsla sem
kom að notum við sjókælingu í
eldgosinu í Heimaey. Hér fer á eftir
frásögn af þessari fyrstu tilraun í
Surtsey.
Um níuleytið að morgni 7.
janúar 1967 kom varðskipið
Albert til Vestmannaeyja
með nokkra ferðalanga á leið til
Surtseyjar og var Þorbjöm Sigur-
geirsson prófessor þar með í för. Frá
flugvellinum í Vestmannaeyjum var
hópurinn ferjaður til Surtseyjar með
þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-EIR
og lenti þyrlan þar á sandinum, við
lónið nálægt Pálsbæ, húsi Surts-
eyjarfélagsins (1. og 2. mynd). Með
þyrlunni var líka flutt þriggja
tomma bmnadæla, sem knúin var
með bensínmótor, ásamt bruna-
slöngum. Þennan búnað var ætlun
Þorbjöms að nota til að reyna hvort
hægt mundi vera að kæla hraun-
rennsli með sjódælingu þannig að
breyta mætti farvegi þess, en vitað
58
Náttúrufræðingurinn 73 (1-2), bls. 58-62, 2005