Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2001, Page 14

Náttúrufræðingurinn - 2001, Page 14
■ ÁKVARÐANATAKA Þegar ákvarðarnir eru teknar um framtíðar- nýtingu auðlinda erlendis bera þeir sem ákvörðunina taka gjarnan saman þann kostnað sem ákveðin framkvæmd hefur í för með sér við þann ávinning sem hafa má af henni. Hvað Kárahnjúkavirkjun varðar, þá er ávinningurinn t.d. þær tekjur sem koma frá sölu raforku, en kostnaðurinn liggur meðal annars í byggingarefni fyrir mannvirki og þeim náttúrufyrirbærum sem tapast. Ef ávinningurinn er meiri en kostnaðurinn er hagkvæmt að fara út í framkvæmdina, en ef kostnaðurinn er hærri en ávinningurinn er ekki skynsamlegt að leggja í hana. Aðferð þessi er þekkt sem kostnaðar-nytjagreining (Sloman 1999). Því miður er slíkur samanburður ekki auðveldur þar sem náttúrufyrirbæri sem tapast munu við tiltekna framkvæmd hafa ekkert tiltekið verð (þau eru ekki metin í krónum og aurum) og því er erfitt að taka þau inn sem kostnað í ákvarðanatöku. Náttúran hefur ekkert verð vegna þess að hún er ekki seld á markaði, en þess vegna er hætta á því að hún verði meðhöndluð eins og hún sé ókeypis, sem leiðir oft til þess að auðlindir eru ofnýttar. Þegar teknar eru ákvarðanir um óafturkræfar framkvæmdir, eins og Kárahnjúkavirkjun er, skiptir verð- mæti þeirra náttúruauðlinda sem verða fyrir umhverfisröskun oft sköpum (Hanley og Spash 1993). ■ HAGRÆNT GILDI NÁTTÚRUNNAH Þróaðar hafa verið hagfræðilegar aðferðir til að leggja peningalegan mælikvarða á náttúru og umhverfisáhrif sem framkvæmdir geta haft í för með sér. Með því að meta þetta svokallaða hagræna gildi náttúru- verðmæta er hægt að gera þeim nokkurn veginn jafnhátt undir höfði og öðrum verðmætum og er það grundvöllurinn fyrir sanngjarni ákvarðanatöku og sjálfbærri þróun (Pearceo.fi. 1989). Hagrænt gildi er mælikvarði á það hversu mikils virði auðlind eins og ósnortin náttúra er. Slíkt gildi verður til þegar fólk nýtir ósnortna náttúru á einhvern hátt eða ber virðingu fyrir henni. Hagrænu gildi má því skipta í notagildi (e. use values) og verndar- gildi (e. non-use values eða preservation values) (OECD 1995). Fyrmefndu gildin verða til þegar fólk nýtir svæðið með beinum hætti, t.d. við fugla- skoðun eða í fjallaferðum (e. direct use values) eða með óbeinum hætti (e. indirect use values), þ.e. þegar fólk hefur gaman af því að lesa bækur eða horfa á sjónvarps- þætti um íslenska náttúru eins og mið- hálendið. Notagildi verður líka til þegar fólk hefur enn ekki haft tækifæn til að skoða viðkomandi náttúruauðlind en vill endilega gera það seinna (e. option values) (Hanley 1995). Verndargildi verða til þegar einstaklmgur ber umhyggju eða virðingu fyrir ákveðnu náttúrufyrirbæri, jafnvel þótt hann nýti það ekki sjálfur. Verndargildum má skipta í tvo flokka. í fyrsta lagi eru það svokölluð tilvistargildi (e. existence values) sem eiga rætur að rekja til þess að fólk vill einfaldlega vita að náttúruauðlindin sé til. I öðru lagi má nefna arfleifðargildi (e. bequest values) sem verða til þegar fólk óskar þess að náttúru- fyrirbæri verði varðveitt fyrir komandi kynslóðir (OECD 1995). Verndargildi vega oft þungt í hagræna gildinu þegar auðlindir eru afskekktar og fágætar. Kárahnjúkasvæðið er ósnortin náttúra sem á sér nær engar hliðstæður í heiminum og því er líklegt að hagrænt gildi þess einkennist að stærstum hluta til af verndargildi (Swanson og Barbier 1992). HSKILYRT VERÐMÆTAMAT Svokallað skilyrt verðmætamat (e. contingent valuation) var notað til meta hagrænt gildi þeirra náttúrufyrirbæra sem fórna þarf við myndun Hálslóns og byggingu stíflu við Kárahnjúka (1. og 2. mynd). En hvernig er farið að því að reikna út hvers virði náttúran er, og hvað Dimmugljúfur, hreindýr, víðerni og fjöll kosta í raun og veru? 92

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.