Náttúrufræðingurinn - 2001, Page 27
(Reid 1996) (5. mynd). Þótt ekki sé búið að
greiða úr allri flækjunni viðvíkjandi tegunda-
myndun hjá doppum (Littorina) virðist
nokkuð ljóst að aurdoppa fór úr Kyrrahafi
yfir í Atlantshaf í gegnum íshafið, meðan
tígulskeljalögin á Tjörnesi voru að myndast.
Þetta er enn frekari vísbending um að
Beringssund hafi opnast fyrr en talið hefur
verið hingað til, þar sem Kyrrahafstegundir
hafa bæði fundist í tígulskeljalögunum og
undirliggjandi gáruskeljalögum frá plíósen-
tíma á Tjömesi (Durham og MacNeil 1967,
Backman 1979, Leifur A. Símonarson o.fl.
1998). Einnig telja L. Marincovich Jr. og A.Y.
Gladenkov (1999) og L. Marincovich Jr.
(2000) að Beringssund hafi opnast fyrr, eða
fyrir4,8 til 5,5 milljón árum. Bentu þeir á að
skeljar ættaðar úr Atlantshafi og íshafi
finnast í jarðlögum í suðurhluta Alaska með
kísilþörungum ættuðum úr Norður-Kyrra-
hafi. Þessar niðurstöður eru í andstöðu við
fyrri kenningar (Þorleifur Einarsson o.fl.
1967, Durham og MacNeil 1967) sem töldu
að opnun Beringssunds hafi byrjað fyrir 3,1
til 4,1 milljón árum. Sennilegra er að
flutningur Kyrrahafstegunda inn í Ishafið
°g Norður-Atlantshafið (Durham og
MacNeil 1967) hafi byrjað fyn', en náð
hámarki er hafstraumar breyttust til norð-
lægari átta gegnum Beringssund þegar
sundið milli Kyrrahafs og Atlantshafs á
Mið-Ameríkusvæðinu lokaðist fyrir um 3,5
milljón árum (Backman 1979). Á þeim tíma
mynduðust krókskeljalögin á Tjörnesi.
Elstu jarðlög með fjörudoppu eru 2,4-
2,55 milljón ára, en það bendir eindregið til
þess að aðskilnaður tegundanna tveggja
hafi átt sér stað eftir opnun Beringssunds,
eftir að aurdoppa (Littorina squalidá) var
komin yfir í Norður-Atlantshaf. Þetta styður
staðbundna tegundamyndun og aðskilnað
aurdoppu og fjörudoppu, sem upprunalega
Var eingöngu í Atlantshafi, en hefur nú
einnig náð lil Kyrrahafs, líklega af
mannavöldum. Þessi aðskilnaður varð í lok
ierðar aurdoppu yfir í Atlantshafið vegna
aðlögunar að aukinni kólnun og orkuríkara
umhverfi á grunnsævi samfara útbreiddri
Jöklun fyrir um 2,5 milljón árum (sjá
Shackleton o.fl. 1984, Chen o.fl. 1995). Þar
sem fjörudoppan hefur ekki fundist í Tjör-
neslögunum er líklegt að aðskilnaðurinn,
þ.e. tegundamyndunin, hafi orðið eftir að
skeldýrahópurinn úr Kyrrahafi kom til
íslands, en áður en hann náði Norðursjó og
Bretlandseyjum. Síðan virðist aurdoppa
hverfa úr Atlantshafi. Þetta bendir til þess
að tegundamyndunin hafi átt sér stað á
Íslands-Færeyjahryggnum og er jafnframt
vísbending um nokkru lægri aldur á
aðskilnaðinum og myndun fjörudoppu en
N.I. Zaslavskaya o.fl. (1992) héldu fram, en
þau töldu aðskilnaðinn hafa orðið fyrir 3,45
milljón árum.
Fjörudoppan dreifðist líklega frá Norður-
sjó til núverandi heimkynna í lok plíósen-
tíma og byrjun ísaldar. Á nokkrum stöðum
hefur hún fundist í jarðlögum utan við
núverandi útbreiðslusvæði, en það sýnir að
tegundin er næm á breytingar í sjávarhita.
Því komst tegundin til íslands á mildu
hlýskeiði á ísöld, eða fyrir um 1,1 milljón
árum. Síðar hvarf hún frá landinu, að því er
virðist í upphafi næsta jökulskeiðs, og
höfum við engar vísbendingar um að hún
hafi kornið aftur. Rek sviflirfa eða flutningur
fullvaxinna dýra á þara, rekaviði eða öðru
braki, sem og virkt eða óvirkt sund frá
Norðursjávarsvæðinu, Bretlandseyjum eða
meginlandi Evrópu, gæti að vísu liafa átt sér
stað einstaka sinnum. Eftir að grunnsjávar-
svæðin á Islands-Færeyjahryggnum og
Wyville-Thomsonhryggnum hurfu á fyrri
hluta ísaldar hafa hafstraumar aðeins
örfáum sinnum flutt lirfur eða fullvaxta dýr
með reki eða á sundi til íslands úr suðurátt.
Lfldegra er talið að flutningar hafi þá frekar
færst til norðausturs inn í Noregshaf (Leifur
A. Símonarson 1981). Af þessu má álykta að
ferðalag tjörudoppunnar um ísland til
Norður-Ameríku hafi verið auðveldara á
fyrri hluta og um miðbik ísaldar en síðar
varð, þegar hryggirnir stóðu orðið dýpra í
sjó eftir að hafa lækkað af völduni rofs og
sigs. Þótt ekki séu taldar miklar líkur á að
núverandi straumakerfi í Norður-Atlants-
hafi dreifi grunnsjávartegundum frá austri til
vesturs eru vísbendingar urn að þegar jöklar
tóku að hörfa í lok síðasta jökulskeiðs hafi
aðstæður verið aðrar og auðveldað slíka
105