Náttúrufræðingurinn - 2001, Síða 43
2. mynd. Skólapiltar í frímínútum í Möðruvallaskóla vorið 1897. Fremst eru Olgeir
Benediktsson frá Garði f Fnjóskadal og Hannes Jónsson frá Hvarfi f Bárðardal (Aug.
Guðmundsson/Ljósmyndadeild Minjasafnsins á Akureyri).
Stefáns, og einnig óbilandi hugsjónaeldur
og kjarkur til að berjast fyrir þeim málum sem
hann gaf sig að.
■ rannsóknir og
RITSTÖRF
En samhliða kennslustarfinu vann þessi
hugsjónamaður að öðrum störfum. Hann
notaði sumarleyfin til rannsóknaferða um
landið þar sem hann safnaði nákvæmari
upplýsingum um íslenskt gróðurfar en
nokkur annar hafði gert. Hann notaði þessa
nýju þekkingu í kennslunni en hóf fljótlega
að setja saman flórulista sem síðar breyttist í
ritið Flóra Islands, sem hann sendi frá sér til
útgáfu árið 1900. Þá er Stefán 37 ára. Ritun
Flórunnar er mikið afrek og enn meira ef
tekið er tillit til þeirra aðstæðna sem það var
unnið við. Ritunin fór fram í íslenskri sveit
með takmarkaðan bókakost en með góð
sambönd við erlenda fræðimenn og í góðri
samvinnu við tvo grasafróða Islendinga, þá
G/st/ncá Kvíabekk í Ólafsf/rð/ i /úlí 1890
Veðrið er undurblítt; það hefur verið sólskin allan daginn, og þétt hafgola er af leið
hádegi, nú er komið blæjalogn. Smá blikubönd draga upp í suðri; þeirn fjölgar smátt og
smátt og eftir litla stund er allt suðurloftið hulið þunnri blikuslæðu. Steinþögul kyrrð
hvílir yfir hinni fríðu afskekktu útkjálkasveit. Ég get varla fengið af mér að rjúfa þögnina
með því að fara að klifrast inn um stofugluggann, mig langar heldur ekki svo mikið inn
í stóru lokrekkjuna. Ég vildi að ég væri orðinn prestur, og er það í fyrsta sinn á ævi minni,
að ég óska þess, því þá skyldi ég sækja um Kvíabekk; hér er nóg verkefni fyrir höndum,
nóg til að rækta, bæði í andlegum og líkamlegum skilningi ... Kveldinu á Kvíabekk
gleymi ég aldrei.
Rannsóknaferðir Stefáns Stefánssonar skólarneistara 1986,
Ferð til Héðinsfjarðar og Hvanndala 1890.
121