Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2001, Side 56

Náttúrufræðingurinn - 2001, Side 56
1. mynd. Jarðúlfur, Proteles cristatus. (Nowak 1991.) annars með því að króa þær inni í sprungum eða hellisskútum og kasta yfir höfuð þeim stóru teppi. Hleypur þá veiðimaðurinn að dýrinu og reynir að flækja það í dúknum, en smeygir um leið snöru um háls þess og böndum um fæturna. Kemur hýenan þá engri vörn við framar. (Jónas Jónsson 1959.) Lesendur gamalla Tarzanbóka minnast þess hve söguhetjan, lávarðurinn af Grey- stoke, fyrirleit hýenumar. Allt þeirra æði ein- kenndist af hugleysi, og íulmenni hændu að sér hýenur og öttu til ódáða. ■ ÆTT OG TEGUNDIR Núlifandi landrándýrum er skipt í allmargar ættir. Þær eru oft taldar sjö - hundar, birnir, hálfbiinir, merðir, deskettir, hýenurog kettir. Hýenuætt er stundum skipt í tvær ættir, eins og brátt verður vikið að, og sumir dýra- fræðingar telja bambusbjörn eða pöndu til sjálfstæðrar ættar. Af hýenuætt, Hyaenidae, eru þrjár ætt- kvíslir og samtals fjórar tegundir, er lifa í Afríku og ein þeirra auk þess í sunnanverðri Vestur- og Mið-Asíu. Höfuðið er stórt og framlimir öflugir. Afturlimimir em hins vegar styttri, svo bakinu hallar aftur. Dýrin draga ekki inn klærnar, sem eru sljóar; fjórar á hverjum fæti nema fimm á framfótum jarðúlfs. Skottið er úfið og í endaþarminum raufarkirtlar sem gefa frá sér stækan þef er dýrin nota við að merkja slóð sína og fæla frá sér fjendur. A öllum nema dílahýenu er áber- andi mön eða fax aftur eftir hryggnum. Læðurnar gjóta oftast tveimur eða þremur hvolpum í senn, á mismunandi tímurn árs eftir tegund og árferði. Minnstur er jarðúlfur, 55 til 80 sentímetra langur auk 20 til 30 cm skotts, og 10 til 15 kg, en stærst dílahýena, einn til 1,7 metrar að viðbættu 26 til 36 cm skotti, og 40 til 86 kg. Kvendýrin verða kynþroska urn þriggja ára, karlarnir ári yngri. Heimildir eru um að minnsta kosti tólf ára gamla villta brún- hýenu. Dílahýena í dýragarði varð 41 árs. Talið er að hýenur hafi greinst frá fornum desköttum í Asíu á míósentímabili, fyrir einum 20 milljón árum. Seint á tertíertíma og á jökultíma lifðu þær auk þess í Norður- Ameríku og Evrópu. 134

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.