Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2001, Side 57

Náttúrufræðingurinn - 2001, Side 57
■ JARÐÚLFUR Jarðúlfur, Proteles cristatus, er ekki hýena, enda gerólíkur þeim um lífshætti. Hans er getið hér af því að hann er yfirleitt talinn til hýenuættar, þótt nokkrir dýrafræðingar ætli honum einum sess í sérstakri ætt, Protelidae. Jarðúlfur Iifir víða í austurhluta Afríku sunnan Sahara, einkum á trjálausum, sendn- um sléttum og í kjarrlendi. Eins og ættingjar hans, hýenumar, er hann helst á ferli um nætur en hefst á daginn við neðanjarðar, oftast í aflögðum grenjum jarðsvíns (sjá mynd hér að neðan). Feldurinn er gulgrár með dökkum röndum, en broddur á skotti og fótleggir fyrir neðan hné eru svartir (1. mynd). Með öllum hryggnum aftur á skott er mikið fax, og Búar kalla jarðúlfinn „manhaarjakkal" eða makka- sjakala. Þegar jarðúlfar verjast fjendum eða eiga í erjum innbyrðis, ýfa þeir faxið og sýnast þá stærri og ógnvænlegri. Olíkt hýenum eru jarðúlfar með veik- byggða kjálka og rýra jaxla, enda er fæðan svo til einungis skordýralirfur, sem dýrin grafa úr jörðu, og termítar. Jarðúlfar hafa verið vændir um að stela hænsnum og lömbum af bændum, en í dýragörðum fást þeir ekki til að éta kjöt nema hakkað eða soðið, svo slíkar ásakanir virðast tilhæfu- Jarðsvín, Orycteropus afer, er að vísu engin hýena, en höfundur freistast samt til þess að láta mynd af þessu skondna dýri fljóta nteð greininni, enda kemur það við sögu vegna húsaskjóls sem það veitir dýruni af hýenuætt, að vísu óvitandi. Þetta er eina núlifandi tegundin af ættbálknum Tubulidentata, sem mætti útleggja „píplutannar" eftir sérkennilegum tönnum, sem eru glerungslausar og rótopnar (vaxa ævilangt). Heldur eru tennurnar rýrar, enda voru dýrin áður talin til ættbálks tannleysingja, ásamt beltisdýrum, letidýrum og maurætum. Nú þykir skyldleiki jarðsvína við önnur spendýr óviss. Sumir telja þó að forfeður þeirra hafi greinst frá aldauða ættbálki frumhófdýra (Protungulata) snemma á nýlífsöld. Jarðsvín eru á stærð við vænt svín, eða um eins til 1,6 metra löng, auk um hálfs metra rófu, og 50-80 kg. Þau lifa í Afríku sunnan Sahara og þnfast í margs konar umhverfi, að þvf tilskildu að nóg sé þar af termítum og maurum, sem jarðsvínin slafra í sig með langri, slímborinni tungu. Dýrin eru á ferli um nætur. Á daginn hafast þau við í grenjum, sem þau grafa í jörð af ótrúlegri fimi. í mjúkum jarðvegi grefur jarðsvín sig svo hratt niður að nokkrir handfljótir menn með skóflur hafa ekki við því. (Nowak 1991.) 135

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.