Náttúrufræðingurinn - 2001, Qupperneq 59
4. mynd. Brúnhýenur, Hyaena brunnea. (Nowak 1991.)
hýenur einkum á hræjum spendýra og eru
einfarar. Norðar eru dýrin félagslyndari. Þar
eru stórvaxnari undirtegundir sem veiða
kindur, geitur, asna og hross og ýmis minni
hryggdýr, og éta auk þess skordýr og aldin.
I Israel eru þær alræmdir skaðvaldar í
plantekrum og spilla melónum, döðlum,
vínberjum, apríkósum, ferskjum og gúrkum.
Dæmi eru um að rákahýenur ráðist á og
drepi menn, einkum börn. En þær hafa verið
tamdar og eru sagðar blíðar og tryggar
húsbændum sínum.
Undirtegundin norðan Sahara er í út-
rýmingarhættu vegna veiða og eyðingar
búsvæða. Þar eru rákahýenur nú aðeins eftir
til fjalla í Marokkó, Alsír og Túnis.
■ BRÚNHÝENA
Brúnhýena, Hyaena brunnea, lifir sunnar-
lega í Afríku - í Namibíu, Botswana, Zim-
babwe, Mósambík og Suður-Afríku, einkum
þar sem þurrt er - á sandauðnum, þurr-
gresjum, kjarrlendi og staktrjáasléttum (sa-
vanna). Hún líkist rákahýenu um sköpulag
og stærð, en bolurinn er dökkbrúnn,
höfuðið grátt, herðar fölbrúnleitar og
framleggir og fætur gráir með dökkbrúnum
rákum (4. mynd). Eins og aðrar hýenur eru
brúnhýenur helst á ferli um nætur. Á daginn
leynast þær í klettasprungum, háu grasi eða
grenjum, sem ýmist dýrin sjálf eða jarðsvín
hafa grafið.
Brúnhýenur lifa einkum á hræjum dýra
sem önnur rándýr hafa leift. Þær éta líka
margt annað, svo sem nagdýr, skorkvikindi,
egg og aldin. Á ákveðnum stöðum og
árstímum fá sumar þeirra allt að helming
fæðunnar úr plöntum. I fjörum leggjast þær á
dauða krabba, fiska og seli. Þegar vel árar
fela brúnhýenur mat, sem þær torga ekki, í
gróðurþykkni eða holum og sækja oftast
innan sólarhrings. Þær hafa til dæmis sést
ræna strútshreiður og hola eggjunum niður
einu og einu.
Brúnhýenur leita matar ýmist einar eða
nokkrar saman. Þær lifa í lauslega tengdum
flokkum, þar sem oft er einn forystuhögni,
þrír eða fjórir högnar honum undirgefnir,
fjórar til sex fullorðnar læður og ung
afkvæmi þeirra. Dýrin merkja slóð sína með
vökva úr þefkirtlum, trúlega til að láta önnur
dýr úr hópnum vita af ferðum sínum frekar
en að þau séu að helga sér óðal.
Brúnhýena er friðuð og talsvert útbreidd í
Botswana, en í Namibíu og Suður-Afríku
hefur henni fækkað verulega og er horfin af
mörgum svæðum, einkum vegna veiða, en
hún er talin vargur í hjörðum húsdýra,
137