Náttúrufræðingurinn - 2001, Qupperneq 65
GUÐRÍÐUR GYÐA EYJÓLFSDÓTTIR
Uppruni sveppasýnis AMNH15349
Að þreyja
ÞORRANN OG GÓUNA
FFyrir kemur að menn standa
gapandi og horfa á sveppi sem
skotið hafa upp kollinum þar sem
_________ þeirra var síst von. Undrun
þeirra er slík að þeir reyna að komast að því
hvaða tegund þetta sé, hví í ósköpunum
sveppurinn sé þarna og hvort þetta geti átt
sér eðlilegar skýringar.
Ekki veit ég hvort sveppurinn sem hér
segir frá kom af stað svipuðum viðbrögðum
þeirra sem sáu hann fyrst, en að minnsta
kosti ákváðu þeir að komast að því hvaða
sveppur þetta væri.
Það var undir lok júní 1999 að Heiða
Rafnsdóttir á Fræðasetrinu í Sandgerði
hafði samband við mig vegna sveppavaxtar
í gömlum klefa, sem lengst af hafði verið
notaður sem frystiklefi. Klefinn var ein-
angraður með reiðingi, hafði upprunalega
verið kældur með ís eða notaður sem
ísgeymsla en síðar fryst í honum með
rafknúnum frystibúnaði eftir að slíkur
búnaður varð algengur. Reiðingurinn (eða
mórinn), sem væntanlega er upprunninn úr
mýri einhvers staðar í grenndinni, hafði
verið um eða undir frostmarki áratugum
saman, líklega í 40-60 ár, en eitthvað yfir
frostmarki síðustu 6 mánuðina. Fræðasetrið
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir (f. 1959) lauk B.S.-
prófi í líffræði frá Háskóla Islands 1981 og
doktorsprófi í sveppafræði frá Manitobaháskóla í
Winnipeg í Kanada 1990. Guðríður Gyða starfar á
Náttúrufræðistofnun íslands, Akureyrarsetri.
fékk klefann til afnota og þegar sveppirnir
fundust var um hálft ár liðið frá því að hætt
var að frysta í honum; þessum langa vetri í
lífi sveppsins lauk og það tók að vora hjá
honum. Töluverður raki hlýtur að hafa varð-
veist í reiðingnum og líklega í klefanum
öllum og komið sveppnum til góða er hann
vaknaði úr dvalanum, því annars er hætt við
að vöxturinn hefði orðið lítill sem enginn.
Það voru þessar frábæru aðstæður sem urðu
til þess að sveppþræðir uxu út um allan
reiðing og sveppaldinin, ljósir hattsveppir,
spruttu í þyrpingum út úr reiðingnum bæði í
veggjum og lofti klefans.
En hvaða sveppur var þetta? Til að svara
því fékk ég sent sýni af sveppnum. Þegar ég
var búin að skoða sveppaldinin varð
niðurstaðan sú að þetta væri gráspyrða,
öðru nafni gráknipplingur, Lyophyllum
connatum (Schum.; Fr.) Sing. Gráspyrða er
algeng um land allt og vex í skurðbökkum,
vegköntum og í landi sem hefur verið
raskað. Hún vex í þéttum knippum og liggja
hattarnir oft hver yfir öðrum, stafirnir
samvaxnir neðst. Hatturinn er hvítgráleitur
og í bleytu stundum gráglær á köflum,
nokkuð stór (þessir t.d. 50-85 mm breiðir),
fyrst með hattbarðið sveigt inn yfir fanimar
en þegar hatturinn vex réttist það út og
brettist upp, og verður hatturinn þá eins og
grunn trekt. Fanimar eru fyrst hvítar en síðar
gulna þær heldur, eru þéttar og ná oft
svolítið niður á efsta hluta stafsins. Stafur er
Náttúrufræðingurinn 70 (2-3), bls. 143-144, 2001.
143