Náttúrufræðingurinn - 2001, Qupperneq 75
7. mynd. Kynþroskahlutfall lýsu eftir lengd (A) og aldri (B). -
Sexual maturity ofwhiting by length (A) and age (B).
meðallengd eftir aldri vex á
ný, þar sem reiknuð
hámarkslengd (LM) er 69,8
cm samkvæmt gögnum frá
1972-1975 en 76,2 cm sam-
kvæmt gögnum Bjarna
Sæmundssonar. Hverfandi
munur er á vaxtarstuðlinum,
K, en sá stuðull er 0,203
samkvæmt yngri gögnum
og 0,206 samkvæmt þeim
eldri.
Fæða
Vægi helstu fæðuhópa
lýsu er sýnt á 9. mynd sem
meðalhlutfall (% þyngd)
af heildarfæðu. Síli
(Ammodytidae) og loðna
(Mallotus villosus) eru
greinilega yfirgnæfandi í
fæðunni, eða um 30% af
meðalþyngd fæðu í maga
hvor hópur. Loðna er
mjög áberandi sem fæða í
mars en er ekki mikilvæg
bráð á öðrum árstímum.
Síli er samheiti þriggja teg-
unda, þ.e. marsílis (Ammo-
dytes marinus), sandsílis
(A. tobianus) og trönu-
sílis (Hyperoplus lanceo-
latus). Hrossarækja
(Crangon crangon) er þriðja algengasta
fæðan með um 10% hlutdeild og síðan koma
ýmsir aðrir fiskar og krabbadýr. Ljóst er því
að fiskar eru langmikilvægasta fæða lýsu og
krabbadýr næstmikilvægust.
Á 10. mynd A sést að fiskar eru yfir-
gnæfandi í fæðu lýsu af öllum stærðum
nema í flokki þeirra minnstu (10-14 cm), en
þar eru krabbadýr aðalbráðin. Bráð af öðru
tagi en fiskar og krabbadýr er óverulegur
hluti fæðunnar. Magn fæðu í maga fer
vaxandi með lengd lýsu, eins og raunar hjá
fiskum almennt, og fylgir veldisfalli (10.
mynd B). Fæðumagnið er því um það bil í
réttu hlutfalli við þyngd ránfisksins. Fjöldi
bráða (10. mynd C) og meðalstærð bráðar
(10. mynd D) vex einnig með lengd lýsu
enda þótt fylgni sé mun lakari. Þessi
sambönd eru þó einnig tölfræðilega
marktæk.
Stofnvísitala
I togararalli í mars 1985-2000 var togað með
botnvörpu á samtals 8994 stöðum um-
hverfis land. 1 fleslum þessara toga, eða
7078, fékkst engin lýsa og nerna þau tog urn
79% af heildarfjölda toga. Jákvæð tog eru
því 1906 og er tíðnidreifing þeiiTa sýnd á 11.
mynd A. Sjá ntá að í nteira en helmingi
jákvæðra toga (1119) fengust 10 fiskar eða
færri. Meira en 1000 fiskar fengust í aðeins
24 togum. Á 11. mynd B er stofnvísitala
sýnd, ásamt aðhvarfslínu, sem einfalt rneðal-
gildi fiska í togi. Greinilegt er að ntikill
153