Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2001, Side 88

Náttúrufræðingurinn - 2001, Side 88
Cpx Cpx Cpx Kz Ól Opx Kz Ab D Or 1. mynd. Flœðirít og efnakerfi (þríhyrningar) sýna hvernig meginlandsskorpa þróast í áföngum úr möttulefni. Kz - kvars; Ab - albít; Or - orþóklas; Cpx - klínópýroxen (ágít); Pl - plagíóklas; Ól - ólivín; Opx - orþópýroxen (hýpersthen); Sp - spínill; Hb - hornblendi. Flœðirit (neðri hluti); Basalt (ólivín-þóleift, B) myndast við 20-30% bráðnun möttulefnisins Iherzólíts (A), en efnið sem eftir situr heitir harzbúrgít. Basaltið vatnast ísjó eða grunnvatni og myndbreytist í amfibólít, og hitni það upp aftur myndast kísilrík bráð, rhýólít (C). Á niðurstreymisbeltum „steypist" hafsbotnsskorpan niður ímöttulinn aftur og blandast honum (amfibólít Iherzólít), en bráð sem við það myndast er andesít. Fyrsta meginlandsskorpa jarðar hefur sennilega myndast líkt og rhýólítið á Islandi (A -*B-*C), en sfðar tóku við stórvirkari ferli með hringrás setbergs (C~*D). Við uppbráðnun á seti (grávakka) aðskiljast granít og granúlít (D). Efnakerfi (þríhyrningar): A: Kerfið Ól-Cpx-Kz. við háan þrýsting. Efri möttulljarðar, sem basalt bráðnar úr, er Iherzólít (ólivín + orþópýroxen + klínópýroxen + Al-steind). Við háan þrýsting myndast bráð með samsetningu rauða depilsins í þríhyrningnum. Þegar bráðin stígur til yfirborðsins „þróast “ hún vegna ólivín-kristöllunar af völdum þrýstiléttis að rauða + í þríhyrningi B. B: Kerfið Ól-Cpx-Kz við lágan þrýsting: Þróun bráðar við lágan þrýsting erfrá ólivín-þóleiíti (rauður +) til þóleiíts (rauður depill). C: Kerfið Ól- Cpx-Kz með vatni: Þegar vatnað basalt bráðnar myndast rhýólít-bráð (rauður depill). D: „ Granít-kerfið “ (Ab-Or-Kz): Við bráðnun á margskonar vötnuðu seti myndast bráð með samsetningu graníts (rauður depill). ■ aldur meginlands- SKORPUNNAR „I see no vestige of a beginning and no prospect of an end“ - Ég sé hvorki merki um upphaf né endi (jarðsögunnar) - skrifaði Skotinn James Hutton fyrir rúmlega 200 árum. Því enda þótt flestir teldu þá að ekki væru nema rúm 6000 ár síðan almættið lauk sköpunarverkinu, hafði Hutton áttað sig á því, fyrstur manna, að ferli jarðar fylgja aðferð eilífðarinnar og fara í hring: Landið rýfst niður, efnin berast til sjávar og mynda setlög, sem síðar geta hafist upp á nýjan leik í fellingafjöllum sem aftur rjúfast niður, og svo framvegis. Og sennilega hefur Hutton grunað að til alls þessa nægðu 6000 ár hvergi. Löngu áður en kenningar um landrek 166

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.