Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 13

Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 13
2. mynd. Úr Innriey í Borgareyjum. Séð til austurs yfir skerið Verpi (eyju nr. 1) tii Borgarness ífjarska. - From Innriey in tlie Borgareyjar islands. The photograph was taken towards east, with skerry Verpi in the foreground and the township of Borgarnes in the distance. Ljósm. Ævar Petersen, 11.6. 2000. Ekki fjarar úr Innriey yfir í nær graslausan grjóthrygg sem er rétt austan hennar og kallast Verpi (eyja nr. 1). Það er eina skerið í Borgareyjum sem stendur alltaf upp úr á flóði. Á því er aðeins smágrastoppur og nokkuð af skaifakáli (2. mynd). Fremriey (eyja nr. 4) liggur aðeins utar, skammt suð-suðvestan Innrieyjar, og er talsvert ólík henni. Um helmingur Fremri- eyjar er nánast rennisléttur að ofan, vaxinn þéttu, snöggu grasi með baldursbrár- breiðum. Eyjan hefur greinilega blásið upp, en moldarflögin sem mynduðust eru nú óðum að gróa upp og alþakin baldursbrá. Hinn hluti eyjarinnar er naktar klappir og smáurðir. Fremriey er 1250 m2 að flatarmáli. Nokkuð vestur af graseyjunum eru Borgarskarfasker (eða Skarfasker), þyrping smáskerja eða hryggja, fimm að tölu, gras- laus með öllu eða því sem næst. Þau eru fremur torveld uppgöngu enda grófgerð, sundurskorin og stórgrýtt. Sker nr. 5 er þeirra stærst, aflangt og óslétt og því illt yfirferðar, gróðurlaust. Sker nr. 6 er tvítoppa og er svolítil meltorfa ofan á annarri bung- unni. Sker nr. 7 er algerlega graslaust, mjög óslétt og örðugt yfirferðar. Sker nr. 8 er ógróið að rnestu utan hvað smágrastoppur er á því og nokkrar skarfakálsplöntur. Sker nr. 9 er alveg graslaust. ■ GAGNAÖFLUN Borgareyjar voru heimsóttar um hvíta- sunnuna, þann 11. júní árið 2000, og var könnun þeirra lokið á einum degi. Farið var í hverja eyjuna af annarri og þær skoðaðar skipulega svo að engir hlutar þeirra yrðu útundan. Veður var gott framan af meðan stóru eyjarnar voru skoðaðar. Þegar á leið og kornið var að því að skoða Skarfaskerin var byrjað að rigna og ágerðist regnið svo að undir lokin var eins og hellt væri úr fötu. 187
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.