Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2002, Page 14

Náttúrufræðingurinn - 2002, Page 14
Fuglatalningar byggðust fyrst og fremst á fundnum hreiðrum. Hjá flestum tegundum var auðvelt að greina og telja hreiðrin. Lundi og máfar eru undantekningar og ástæða til þess að gera nánari grein fyrir talningum á þeim. Lundi. Erfitt er að meta nákvæman fjölda lundahreiðra með eggi (eða unga), enda verpa lundar í holum í grassverðinum, sem flestar eru svo djúpar að hreiðurskálin sést ekki. í staðinn var notuð talningareiningin „hola sem leit út fyrir að vera notuð“ (sbr. Nettleship 1976) og fjöldi lundapara í varpinu metinn út frá því. Hola var skilgreind notuð ef sýnilega var gengið um holumunnann, gras bælt í honum, nýr skítur sjáanlegur, moldin í holumunnanum ný- þjöppuð, rótað hafði verið út úr holunni, egg sást o.s.frv. í flestum tilvikum voru einhver þessara ummerkja nokkuð greinileg. Þetta er tiltölulega auðveld aðferð sem unnt er að endurtaka síðar til samanburðar. Ekki er endilega víst að egg hafi verið í öllum notuðum holum né að geld pör hafi alltaf notað sömu holuna. Stundum voru holur greinilega ónotaðar og voru þær ekki taldar. Hola var álitin ónotuð ef ofangreind ummerki sáust ekki en þá greri oftast gras eða arfi einnig upp úr holumunnanum. Ennfremur fundust tilraunaholur sem lundar voru nýbyrjaðir að grafa. Þær voru stuttar, enda höfðu fuglarnir oftar en ekki lent á grjóti og ekki náð að grafa lengra, og voru þær ekki taldar. í lundabyggðum ber jafnan mest á slíkum holutilraunum á ystu jöðrum byggðanna og eiga líklega ungir lundar í hlut. Þegar tveir eða þrír munnar voru á sömu holu var hún aðeins talin einu sinni. í lundavörpum kemur fyrir að tvö lundapör noti sama munna en sitt hvora hreiðurholu, en það er líklega sjaldgæft. Til að ruglast ekki á holum sem búið var að telja var varpið skoðað á þann hátt að snæri var lagt út þvert yfir það. Nokkrir metrar voru milli snærislína og fór breidd talningar- sniðs eftir því hve þéttar holurnar voru hverju sinni. Tveir menn gengu samsíða eftir sniðinu, frá öðrum jaðri varpsins og þvert yfir það, og töldu holurnar upphátt til að forðast tvítalningu. Eins mörg snið voru lögð út og þurfti til þess að ljúka við hverja lundabyggð. Þessi aðferð er líklega sú nákvæmasta sem unnt er að beita á lunda- vörp í jarðvegi án allt of mikillar fyrirhafnar. Unnt er að endurtaka talningu og fylgjast þannig með breytingum á varpinu, þ.e. vakta það. Ekki er unnt að beita sömu aðferð á lundavörp í urðum og fyrir bragðið mun erfiðara að meta stærð þeirra. Rita. Stærð rituvarpsins var metin þannig að öll hreiður sem voru álitin geta haldið eggi eða unga voru talin (Apparently Occu- pied Nestsite, Nettleship 1976). Þessa talningareiningu er unnt að nota til saman- burðar milli varpa og athuga breytingar á sama varpi eftir árum. Ritur verpa oftast í háum fuglabjörgum og þar er örðugt eða ógjörningur að ganga úr skugga um hvort egg eða ungar séu í hverju hreiðri. Aðferðin hentar ágætlega fyrir rituvörp, enda helst hreiðrið vanalega lengi þótt innihald þess (egg, ungar) misfarist. Stórir máfar. Hreiður voru einnig talin hjá öðrum máfum. Þar sem fleiri en ein tegund svokallaðra stórra máfa (svartbaks, síla- máfs, o.fl.) verpa á sama stað er viss hætta á að hreiður séu ranggreind. Staðsetning þess og stærð, svo og litur eggjanna, segja mikið til um tegund, en einkum er hætta á ruglingi milli síla- og silfurmáfshreiðra. Því voru fuglarnir sem flugu umhverfis eyjarnar einnig greindir til tegundar og taldir. Auk eigin gagna leituðu höfundar víða birtra og óbirtra gagna um eyjarnar og fuglalíf þeirra, en upplýsingar um eyjarnar reyndust almennt mjög af skornum skammti. Ekki fundust neinar heildstæðar lýsingar sem unnt var að bera saman við niður- stöðurnar frá árinu 2000 svo unnt væri að átta sig á hugsanlegum breytingum á fugla- lífinu. Aðeins upplýsingabrot voru til um einstaka tegundir frá mismunandi árum. Á síðustu áratugum hafa dílaskarfur, topp- skarfur og rita verið talin í landinu (Arnþór Garðarsson 1979, 1996; Ævar Petersen og Sigurður Ingvarsson 1995), en varp þessara tegunda í Borgareyjum kom ekki í ljós fyrr en í þessari könnun. Kristinn H. Skarphéðins- son kom í Borgareyjar 13. ágúst 1975 og skráði það sem hann sá af fuglum, en 188

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.