Náttúrufræðingurinn - 2002, Page 18
ekki getið með vissu fyrr en í bók Jóns
Helgasonar (1967). Kristinn H. Skarp-
héðinsson getur lundavarps bæði á Fremri-
og Innriey árið 1975.
Teista Cepphus grylle. Teistuvarp var að
finna í þremur eyjanna, eyju nr. 4, skeri nr. 5
og skeri nr. 9. Á tímabilinu 1520 til 1800 sáust
við þessar eyjar fjórar, fjórar og tvær
fullorðnar teistur (sama röð). Hreiður með
tveimur eggjum fannst í eyju nr. 4 vestast, þar
sem er dálítil urð eða gijót. Fuglamir hegðuðu
sér þannig að álitið var að um fimm pör væri að
ræða, enda héldu fuglamir sig tveir og tveir
saman.
Hvorugur hluta Innrieyjar er vel fallinn til
teistuvarps, báðir algrónir og lítið um gjótur.
Árið 1975 fann Kristinn H. Skarphéðinsson
teistuhreiður með unga í Fremriey og taldi það
vera eina teistuhreiðrið í eyjunni.
Sennilega hafa teistur orpið lengi í
Borgareyjum og Borgarskarfaskerjum þótt
ritaðar heimildir skorti.
Aðrar fuglategundir. Auk ofangreindra
ellefu varptegunda sást einnig einn tjaldur
Haematopus ostralegus og nokkrir sendlingar
Calidris maritima í eyjunum. Þessar tegundir
vom greinilega ekki varpfuglar. Kristinn H.
Skarphéðinsson sá 3—4 hvítmáfa Larus
hyperboreus þegar hann var á ferð 13. ágúst
1975. Eflaust sjást endmm og sinnum ýmsar
fleiri fuglategundir sem verpa ekki í eyjunum,
bæði að sumarlagi og á öðmm tímum árs.
■ SAMANTEKT OG AÐRAR
ATHUGANIR
11. töflu eru dregnar saman upplýsingar um
fjölda varppara í Borgareyjum og á
Borgarskarfaskerjum.
Könnunin leiddi í ljós samanlagt um 4.000
varppör fugla af ellefu tegundum í eyjunum
sumarið 2000. Lundi var í margföldum
meirihluta, um 3.800 pör, en rétt er að ítreka
að ekki hefur endilega verið egg í hverri
notaðri lundaholu. Næstalgengust var rita
með tæp eitt hundrað varppör.
Ekki er vitað nákvæmlega hvenær topp-
skarfur og rita byrjuðu að verpa í eyjunum á
síðari árum. Líklega hafa tegundirnar byrjað
að verpa þarna á allra seinustu árum; topp-
skarfur eftir 1995 og rita sennilega einnig.
Sílamáfur er einnig nýlegur varpfugl og
tæplega nema um þrír áratugir síðan fýll hóf
varp þar í eyjunum.
Engin merki fundust um afrán af völdum
stóru máfanna, svartbaks og sílamáfs, á
öðrum fuglum utan eitt stokkandarhreiður
og eitt toppandarhreiður sem voru upptætt.
Kristinn H. Skarphéðinsson fann nokkur
lundahræ 13. ágúst 1975,ogeftirlýsingu að
dæma merki um afrán svartbaka. Ekki virtust
máfar hafa drepið neina lunda þegar
könnunin fór fram sumarið 2000. Þeir virðast
einkum herja á lunda í vörpum síðsumars,
þ.e. á þeim tíma þegar lundarnir eru að bera
1. tafla. Varptegundir í Borgareyjum og á Borgarskarfasker/um, ásamt fjölda varppara. -
A summary of the breeding bird species of Borgareyjar and Borgarskarfasker and the
number of breeding pairs.
Tegund Species Fjöldi varppara/ No. ofbreeding pairs
Fýll Fulmarus glacialis 10
Toppskarfur Phalacrocorax aristotelis 4
Grágæs Anser anser 8
Stokkönd Anas platyrhynchos 2-3
Toppönd Mergus serrator 1-2
Æðarfugl Somateria mollissima 16
Rita Rissa tridactyla 96
Svartbakur Larus marinus 12
Sflamáfur Larus fuscus 19
Lundi Fratercula arctica 3804
Teista Cepphus grylle 5
192