Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 24

Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 24
■ LANDNÁM GEITUNGA OG LI'FSHÆTTIR í HNOTSKURN Til að byrja með er nauðsynlegt að gera nokkra grein fyrir stöðu geitunga hér á landi. Alls hafa fjórar tegundir náð að setjast hér að og er það með ólíkindum þegar tekið er tillit til þess að aðeins sjö tegundir lifa á Bretlandseyjum þar sem aðstæður eru ólíkt vistlegri (Edwards 1980). Gerð var grein fyrir upphafi landnámsins á síðum Náttúru- fræðingsins fyrir margt löngu en þá voru aðeins tvær tegundanna komnar til sögu (Erling Ólafsson 1979). Síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið og mikilla upplýsinga verð aflað um landnám geitunga, útbreiðslu þeirra um landið og aðlögun að staðháttum. Löngu er orðið tímabært að koma þeim fróðleik á framfæri en verður hins vegar ekki gert að þessu sinni. í stuttu máli skal þó upplýst hér hvenær tegundimar fjórar fundust fyrst með bú, um útbreiðslu þeirra í grófum dráttum og um aðstæður þar sem búin eru staðsett. Húsageitungur Paravespula cermanica (Fabricius, 1793) varð e.t.v. fyrstur til að nema hér Iand. Ekki lék vafi á því að sumarið 1973 var bú í miðbæ Reykjavíkur þótt ekki hafi það fundist. í kjölfarið fór tegundin að finnast nokkuð reglulega á höfuðborgarsvæðinu. Hún hefur þó átt nokkuð erfitt uppdráttar og aldrei náð sér verulega á strik, enda er húsageitungur hér nálægt nyrstu mörkum þess sem hann getur lifað við. Útbreiðsla húsageitungs er enn takmörkuð við höfuð- borgarsvæðið en afar litlar líkur eru til þess að hann nái fótfestu utan þess landshluta. Tegundin finnur búum sínum iðulega stað inni á húsþökum, á háaloftum eða í holrými milli þilja. Holur í jörðu duga einnig ágætlega. Holugeitungur Paravespula vuíg/Uí/5(Linnaeus, 1758) fannst fyrst með bú árið 1977 í Laugarnes- hverfi í Reykjavík og hefur fundist hér reglulega síðan, þó aðeins á höfuðborgar- svæðinu. Honum gengur mun betur hér en húsageitungi þótt veruleg áraskipti séu af honum. Sum ár er hann algengur en hann getur dottið niður á milli. Holugeitungur setur niður bú á sömu stöðum og húsa- geitungur, þ.e. inni í húsum og í holum í jörðu. Hraunhellur í blómabeðum eru afar vinsælar hjá holugeitungum. Trjágeitungur Dolichovespula norwecica (Fabricius, 1781) kom næstur en hann fannst á tveim stöðunt sumarið 1980, í Skorradal á Vesturlandi og í Neskaupstað á Austurlandi. Því má gera ráð fyrir að hann hafi borist eitthvað fyrr til landsins þótt ekki hafi það verið upplýst. Trjágeitungur dreifðist í kjölfarið hratt um landið, fyrst um láglendið og á seinni árum upp í hálendisbrúnir. Staða hans er mjög traust. Vorhret á Norðurlandi hafa stundum valdið honum búsifjum en hann hefur ávallt náð sér á strik á ný. Bú trjágeitungs eru yfirleitt vel sýnileg og oft berskjölduð. Þau hanga gjarnan í trjám og runnum, undir þakskeggjum húsa og á gluggakörmum, á klettum og steinum, í börðum og þúlna- kollum svo dæmi séu tekin. Roðageitungur Paravespula rufa (Linnaeus, 1758) mætti síðastur til leiks. Grunur lék á búi í Hafnarfirði 1986 en fyrsta búið fannst þó ekki fyrr en 1998 í Kópavogi. Aðeins tvö bú hafa fundist síðan, þ.e. í Garðabæ og Reykjavík. Tegundin er því afar sjaldgæf og óvíst er um frekari afdrif hennar hér. Öll búin fundust í holum í jörðu. Hér á eftir verður kastljósinu beint að stungum geitunganna, viðkomandi líf- færum, hvernig stungur fara fram, áhrifum þeiiTa og hugsanlegum afleiðingum. Einkum er stuðst við bók Edwards (1980). ■ gaddurinn og TILHEYRANDI LÍFFÆRI Gaddur geitunga er myndaður úr hlutum af áttunda og níunda lið afturbolsins og er af sama toga og varppípa sníkjuvespna (2. 198
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.