Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 28
stungur. Mest er hættan á stungum við
búin. Geitungar ráðast þó sjaldnast til
atlögu nema þeir séu ónáðaðir í búinu, þótt á
því séu vissulega undantekningar. Það ætti
því að vera sjálfsagður hlutur að eyða þeim
búum sem menn finna í nágrenni sínu. Því
miður er ekki óalgengt að sjá böm að leik við
að grýta bú eða pota í þau með tilfallandi
hlutum. Oft eru það strákar á aldrinum sjö til
tíu ára sem þurfa stundum að leika kalda
karla, en storka því miður um leið örlög-
unum. Slíkur leikur getur vissulega endað
með ósköpum. Því er brýnt að foreldrar geri
börnum sínum grein fyrir þeim hættum sem
af slíkum leik geta stafað.
Mest hætta stafar af geitungabúum
síðsumars. Þau eru þá orðin stór og afar
fjölskipuð. A þeim tíma er og hafinn undir-
búningur að framleiðslu nýrra drottninga og
virðist það hvetja þernurnar einn frekar til að
verja búin af einurð. Algengast er að menn
lendi í búum geitunganna við garðyrkjustörf í
ágúst. Margir garðeigendur ráðast þá aftur til
atlögu við limgerðið sitt og lenda þá jafnvel
með klippumar í búum trjágeitunga. Tími
rifsberjatínslunnar er einnig viðsjárverður. Bú
trjágeitunga em oft í rifsmnnum. Það er
athyglisvert að þéttleiki berja er oft áberandi
mestur í nágrenni búanna. E.t.v. er það vegna
þess að geitungamir ná að halda fuglum sem
ásælast berin í hæfilegri tjarlægð.
Þá stafar veruleg hætta af holu- og
húsageitungum sem hafa hreiðrað um sig í
steinhleðslum í blómabeðum. Ymsir hafa
orðið fyrir barðinu á þeim þegar verið er að
snyrta beðin.
Þegar haustar enn frekar verða þernurnar
lausari við búin og eiga það þá til að huga
meir að eigin hag en velferð búsins. Þetta á
einkum við um holu- og húsageitunga.
Þernurnar þvælast þá um víðan völl í leil að
girnilegum matarbitum. Þær eru sælkerar
miklir og sækja markvisst í sætindi af ýmsu
tagi. Nestisbitar úti í garði á góðviðrisdegi
þykja girnilegir, einnig gosdrykkir, bjór og
vín. Því er ákaflega mikilvægt að neyta slíkra
drykkja úr glösum en ekki úr ílátum sem ekki
sést ofan í, t.d. áldósum. Geitungar geta
þvælst óséðir ofan í dósir og flöskur og síðan
lent í munnholi neytandans í næsta sopa.
Á þessum tíma leita geitungamir mjög inn
í hús, því þeir renna á matarlykt sem leggur
út um opna glugga. Inni eru þeir þó yfirleitt
til friðs. Þar flögra þeir um og leita gjaman
aftur út í gluggana þar sem auðvelt er að
fanga þá. Hins vegar skal á það bent að ef
dagblað eða áþekkt barefli er notað til að slá
geitungana niður er mikilvægt að þeir liggi
flatir við fyrsta högg, því annars er hætta á
að þeir snúist umsvifalaust til varnar. Þeir
eru harðir af sér og þarf því að standa vel að
högginu. Hárlakk getur reynst ágætlega í
baráttunni við geitunga innanhúss. Ef því er
úðað á þá verða þeir strax óvígir. Vængirnir
límast saman og þeir missa flugið, öndunar-
opin teppast og máttur þverr fljótlega þar
sem súrefnisþörfin er mikil. Hárlakk er þó
vandmeðfarið því það lendir vissulega víðar
en á geitungunum. Það skal tekið fram að
trjágeitungar sækja afar sjaldan inn í hús.
Ekki síst ber að varast að geitungar sleppi
inn til barna sem sofa utanhúss í barna-
vögnum. Mikilvægt er að ganga tryggilega
frá flugnanetum á vögnunum, þannig að
engin leið sé opin. Stundum má sjá götótt
net fyrir vögnum eða illa frá þeim gengið,
sérstaklega í hornunum neðanvert. Slík net
geta reynst verri en engin net, því þau geta
hindrað för geitungs, sem komist hefur inn í
vagninn, út aftur. Ungbarn í vagni er að
sjálfsögðu einstaklega varnarlaust. Geit-
ungur getur sest á andlitið til að gæða sér á
slefu barnsins, jafnvel lent uppi í munni
þess eða skriðið undir vanga og stungið
þegar barnið byltir sér. Það skal ítrekað að
lítil manneskja er ekki eins vel í stakk búin að
takast á við eituráhrif og stór manneskja.
Aukinheldur er hún síður fær um að láta vita
af vanlíðan sem gæti bent til ofnæmis. Þarna
er fullrar aðgátar þörf, einkum á tímabilinu
frá miðjum ágúst og fram eftir september-
mánuði.
■ LOKAORÐ
Nokkur munur er á árásargirnd tegundanna
og hegðun við atlögur að fórnarlömbunum.
Höfundur hefur ítrekaða reynslu af öllum
tegundunum nema roðageitungi, sem er
202