Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 36

Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 36
Ragnheiður Asta Pétursdóttir ásamt fjölskyldu við lendinguna í Traustholtshólma. Ljósm. Jón Múli Arnasón 1988. Forsætis- og Ferjuneslandi, andspænis Sauðholti að austan. Hafa bændur af þessum þrem bæjum á vesturbakkanum haft með sér félagsskap við selveiðina, einkum meðan hún var stunduð með ádrætti. Annað svæðið eru eyramar fyrir austan og neðan Sýrlækjarbót, allt fram undir Selpart. Þriðja svæðið, eyrar austan aðalárinnar fyrir neðan Ferjuhamar, er um það bil hálfnaða leið fram að Traustholtshólma. Síðastliðið vor höfðu bændur af þessum bæjum austan og vestan ár félag með sér um veiðina á báðum þessum svæðum, en það eru Sandhólaferja austan ár en Sýrlækirnir báðir og Selpartur vestan ár. Fjórða svæðið er eyrarröndin sem byrjar við fremri tanga Traustholtshólma og er nánar lýst hér að framan. Mjög er breytilegt hvar selurinn heldur sig á þessu svæði. Þegar ég man fyrst eftir hélt hann sig mest á eyraroddanum við framtanga Hólmans gegnt Arabæjartanga. Var þá lagnet haft við þessa eyri, vitjað um það kvölds og morgna og til þess notaður bátur sem var í Arabæjartanga. Oft var félagsskapur um þessa veiði svo og ádrátt með þeim Hólmasels-, Arabæjar- og Arabæjarhjáleigumönnum. Lagnet var einnig við Arabæjartanga og skiptust Ara- bær og Arabæjarhjáleiga um veiðina sína tvo dagana hvort. Hólmaselsmenn höfðu einnig lagnet við Hólmaselstanga sem er beint á móti Hólmabergi og sátu einir að þeirri veiði. A seinni árum hefur selurinn fært sig framar og heldur sig aðallega þar sem álarnir flæða út í meginána. Þetta var eitt besta veiðisvæðið í ánni meðan veiðin var stunduð með netum. Fimmta svæðið er svo Skúmeyrarsvæðið og er það að sjálfsögðu nytjað af Fljótshólamönnum. Þetta er tvímælalaust mesta selabyggð í ánni og liggur selurinn oft í hundraðatali um allar þessar eyrar á öllum tímum árs, því þótt áin sé á ís megintíma vetrarins er oft íslaust upp að fremstu eyrum, en kobbi fylgir ísröndinni upp í ósinn og liggur þá á skörinni ef svo vill. Ekki voru þessi veiðifélög manna í neinu föstu formi, heldur lausn á stundarvanda og breytilegt frá ári til árs hverjir unnu saman. T.d. voru Króksmenn stundum með Hólma- selsmönnum við ádrátt. Frá því snemma vors og langt fram á haust hefst selurinn við á þessum eyrum og er á sífelldri ferð unr ána milli þess sem hann liggur uppi. Sagt er að hann fari tvisvar á dag til sjávar í ætisleit og hagi svo til að mæta aðfallinu fram í ósnum. Ekkert vil ég fullyrða um sannleiksgildi þessa en margoft hef ég talið yfir hundrað seli hleypa fram aðalá, milli Traustholtshólma og Selparts, á svo sem eins og 10 mínútum. Síðustu dagana fyrir burðartímann og þá fyrstu eftir hann heldur kæpan - selamóðirin - kyrru fyrir og virðist ekki leita sér að fæðu. Þegar líður að burðartíma dregur hún sig út úr og leitar afvikins staðar sem lengst frá hópnum - á sömu eða næstu eyri sé hún ekki setin. Og innan tíðar er nýr kollur kominn í ljós þarna úti á eyrinni, farinn að teygja sig yfir bakið á ntóður sinni og virða fyrir sér þetta nýstárlega og fagra umhverfi. Umferð um sellátur á þessum tíma er mjög til óþurftar og getur ært bæði menn og skepnur. 210
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.