Náttúrufræðingurinn - 2002, Síða 71
Skýrslaum Hið íslenska
NÁTTÚRUFRÆÐIFÉLAG FYRIR
ÁRIÐ 1999
FREYSTEINN SIGURÐSSON
Samkvæmt lögum Hins íslenska
náttúrufræðife'lags skal formaður
félagsins birta árlega skýrslu um
starfsemi þess í Náttúrufræðingnum.
■ FÉLAGAR
Félagar og áskrifendur að Náttúrufræðingn-
um voru 1.283 í árslok og hafði fækkað urn 61
á árinu. Heiðursfélagar voru 10 í árslok og
hafði fækkað um einn á árinu. Guttormur
Sigbjarnarson var kjörinn heiðursfélagi á
aðalfundi í febrúar, en á árinu létust tveir
heiðursfélagar, þeir Axel Kaaber og Þor-
leifur Einarsson. Kjörfélagar voru sjö og
hafði fjölgað um einn á árinu, en Haukur
Hafstað var gerður kjörfélagi á árinu.
Almennir félagar voru 1.006 og hafði fækkað
um 48 á árinu. Alls létust 11 félagar á árinu,
24 sögðu sig úr félaginu en 54 voru strikaðir
út vegna vanskila. A árinu gengu 28 nýir í
félagið, þar af 13 svokallaðir skólafélagar
eða ungmennafélagar en þeir voru 58 í
árslok og hafði fækkað um fimm á árinu.
Félagar og stofnanir erlendis voru 42 og
Freysteinn Sigurðsson (f. 1941) lauk Diplomprófi
í jarðfræði frá Háskólanum í Kiel í Þýskalandi árið
1974. Freystienn hefur starfað hjá Orkustofnun æ
síðan, einkum við grunnvatnsrannsóknir, neyslu-
vatnsrannsóknir og jarðfræðikortagerð. Hann hefur
verið formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags
frá 1990.
hafði fækkað um níu frá árinu áður.
Félagatala fór enn lækkandi á árinu. Hún
mun hafa verið hæst að nafninu til árið 1988,
en þá voru 1.976 félagar á skrá, að vísu
nokkur hundruð í vanskilum með árgjöld
fleiri ára. Síðan hefur félagatala almennt farið
lækkandi, að undanskilum árunum 1994 og
1995 þegar lítils háttar fjölgun varð. Þessi
fækkun skýrist að hluta til af harðari
útstrikunum vegna ógoldinna árgjalda, en
einnig af öðrum atriðum, sem ýmsum getum
hefur ítrekað verið leitt að í ársskýrslum
félagsins. Má ætla að raunveruleg fækkun
haft numið um eða yftr 300 félögum á tólf ára
tímabili, frá 1988 til 1999, en nákvæm tala
liggur ekki fyrir.
■ STjÓRN OG
STARFSMENN
Á aðalfundi HÍN, 27. febrúar 1999, voru
fráfarandi stjórnarmenn og embættismenn
endurkjörnir. Stjórn HIN 1999 var þá þannig
skipuð: Formaður Freysteinn Sigurðsson,
varaformaður Hreggviður Norðdahl, ritari
Þóra Elín Guðjónsdóttir, gjaldkeri Kristinn
Albertsson, meðstjórnandi Hilmar J. Malm-
quist. Varamenn í stjórn voru Helgi Guð-
mundsson og Hólmfríður Sigurðardóttir.
Endurskoðendur reikninga voru Tómas
Einarsson og Kristinn Einarsson en vara-
endurskoðandi Arnór Þ. Sigfússon.
Náttúrufræðingurinn 70 (4), bls. 245-251, 2002.
245