Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 5

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 5
an. Snjó skefur af hryggjum og hlíðum, sem eru áveðurs, og niður í gil og hlé- megin i hlíðar. í fjallsbrúnum myndast hengjur og undir jaeim eru oft hættu- legar snjódyngjur (1. mynd). Skafrenn- ingur er mestur skömmu eftir snjókomu. Þurr snjór berst auðveldlega með vindi og má reikna með að rúmmál þess snjós, sem vindur flytur, vaxi í jtriðja veldi með vindhraða. Tvöfaldist vindhrað- inn, áttfaldast snjómagnið i skafrenn- ingnunt. Ef vindur er yfir 25—50 hnúta myndast harðir flekar. Votur snjór eða harðfenni flyst hins vegar lítið með vindi. Því er það ekki algild regla að fjallshlíðar áveðurs séu snjóléttar. Þegar blautur snjór fellur getur vindur jtjapp- að honum í fleka áveðurs í hlíðar. Upptök snjóflóða eru algengust efst í hlíðum í 30° til 50° halla (1/1.7 til 1/0.8), einkum í giljum, gljúfrum og skálum, en mikil flóð geta falliö úr hlíð- um með halla allt frá 25° til 55° (2. mynd). Snjór tollir illa í hlíðum, sem eru brattari en 60°, og því er sjaldgæft að flóð eigi upptök í svo bröttu landi. Undantekning frá þeirri reglu eru þó 2. mynd. Halli lands við upptök snjóflóða. (Lied, Larsen og Bakkeh 'öi 1976). spýjur úr [Dröngum giljum og hengjur, sem falla fram af klettum. Lausasnjóflóð eru sums staðar algeng úr um 55° halla en þau eru sjaldan stór. Vot flóð geta fallið úr litlum halla, jafnvel 10° (1/6), t. d. ef vatn, sem rennur úr bröttum hlíðum, nær að safnast j:>ar fyrir og leysa upp styrk þekjunnar. Neðan við upptakasvæðiö tekur við fallbraut flóðanna (3. mynd). Algengt er að ein fallbraut geti borið flóð frá mörgum upptakasvæðum; upptökin greinast jíá í mörg gil, sem veita flóðum niður í sömu fallbraut. (Slík upptök geta tæmst eitt af öðru og er mikilvægt að hafa jtað í huga, þegar björgunarsveitir eru sendar inn á svæði þar sem flóð hafa fallið). I fallbraut snjóflóða má á ýmsan hátt sjá ummerki eftir jtau. Flóðin geta skorið sig niður í jörð og borið stórgrýti og lausan jarðveg langar leiðir niður á sléttlendi og ægir [sar öllu saman. A sumrin má jjvi oft sjá sár i jarðvegi eða gróðri |)ar sem flóð hafa falliö um vet- urinn. Og jafnvel þótt mörg ár séu liðin frá (dví að flóð hefur farið um farveg má sums staðar sjá merki þess á tegundum Myndin lil hægri sýnir niðurstöður frá Noregi. 259

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.