Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1980, Side 21

Náttúrufræðingurinn - 1980, Side 21
VIÐAUKI Minmsatnði við mat á yfirvofandi snjóflóðahœttu Þótt meginreglan við mat á yfirvofandi snjóflóðaltættu sé sú að búast rnegi við snjó- flóðum þegar hríðarveður skella á er þessi regla alls ekki óbrigðul því að stórhríðir ganga oft yfir án þess að flóð falli. Snjó- flóðaspár þarf að vinna með athugunum á ýmsum þáttum, sem raktir hafa veriö hér að framan. Meginatriði þess munu nú endur- tekin og sett fram skref fyrir skref. Mælt er með þvi að þessum atriðum sé fylgt kerfis- bundið og menn auki þannig markvisst reynslu sina við mat á snjóflóðahættu. 1. Kannið hvort snjór sé nœgur í upptökwn til pess að flóð geti fallið Snjóflóð falla ekki fyrr en ójöfnur i fjalls- hlið hefur fennt i kaf og nýsnjór er tekinn að falla á allslétt yfirborð. Venjulega falla snjóflóð ekki úr sléttri fjallshlið, t. d. grasi- vöxnum brekkum, fyrr en snjódýpt er orðin 30 cm. En þegar snjódýpt er orðin meiri en 50 cm vex hættan mjög. Á ósléttu landi er lágmarkssnjódýpl venjulega 60 cm áður en flóð taka að falla en 90—Í20 cm á mjög ósléttu landi, t. d. stórgrýtisurð. Afla þarf vitneskju um lágmarkssnjódýpt á hinum ýmsu upp- takasvæðum. Því dýpri sem snjóþekjan er því líklcgra er að snjóflóð falli. Fylgjast þarf með snjódýpt á upptaka- svæðum snjóflóða, annað hvort með því að grafa gryfjur eða lesa af mœlistikum. Sums staðar má setja upp stikur að hausti og lesa af þeim meö kíki úr fjarska. Varhugavert er að treysta þvi að snjómælingar á láglendi gefi rétta rnynd af snjósöfnun á upptaka- svæði snjóflóða. 2. Kannið lagskiptingu snjóþekju og metið slyrk hennar Æskilegt væri að fylgst sé með gerð snjó- þekju á upptakasvæðum með þvi að gera beinar athuganir i snjógryfjum, t. d. hálfs- mánaðarlega. Tilgangur þeirra athugana er sá, að leita að veikburða lögum i snjóþekj- unni. Vcrði beinuni mælingum ekki við komið er mikilvægt að meta óbeint styrk snjóþekjunnar út frá veðurathugunum. Mikil- vægt er að fylgjast með hitastigi i byrjun snjó- komu vegna þess að af þvi má marka hve góða festu nýsnævi fær við yfirborð gömlu snjó- þekjunnar. í miklu frosti binst snjór illa frosnu yfirborði, einkum ef hann fellur i kyrru veðri. Mjög mörg lausasnjóflóð falla af þvi að nýsnjór hefur runnið af stað á harð- fenni (hjarni). Metið áhrif hlýinda, regns eða sólbráðar á styrk snjóþekju. Ef hitastig í snjónum er nálægt frostmarki þarf litið vatnshrip gegnum snjóinn til þess að hann verði allur votur og fari að missa styrk. 3. Metið áhrif aukinnar snjósöfnunar (snjókomu og skafrennings) Mikilvægt er að fylgjast með hraða snjó- komu. Því örar sem snjóar, þvi mciri hætta er á flóðum. Falli 25 cm þykkt snjólag á sólar- hring eða samfellt 3 cm á klst. á dagparti er hættan mikil. Ekki er siður mikilvægt að fylgjast nteð hve hrall nýsnœvi sest. Setjist snjór hægt er mikil hætta á flóðum. Ef frost er mikið sest snjór- inn hægt og hætt er við flóöunt þcgar ný- snævi er orðið um 30 cm. I hríðarveðri getur verið erfitt að fylgjast nteð sighraða á mæli- stikum. Þvi er mikilvægt að meta sighrað- ann með þvi að fylgjast meö lofthita meðan á hriðinni stendur, ekki siður en i byrjun hennar. Að framan var á það minnst að hlýni skyndilega, eins og stundum verður i lok ntokhriðar, er mikil hætta á flóðum. Þá er mikilvægt að fylgjast með vindstyrk og vindstefnu fram af fjallsbrúnum. Þvi meiri sem vindur er, því meiri er hættan á flóðum. Áttið ykkur á þvi i hvaða hlíðar snjór safnast. Hafið i huga, að vindátt getur verið önnur á láglendi en fram af fjalls- brúnum. 4. Ilafið augun opin fynr ýmsum merkjum um að snjór sé orðinn óstöðugur Ef fréttir berast af þvi að snjóflóð séu farin að falla i nágrenni er það visbending um að snjóalög séu almennt óstöðug. Gildir einu þótt um sé að ræða meinlausar spýjur, eða jafnvel snjóbolta, scm velta niður hliðar. Af öðrum hættumerkjum má nefna bresti og hvin, þegar holrými undir flckum fellur 275

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.