Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 23
3 t) j,
_2 T3 X)
1/1 o 2.
- ^
o *o
•o 'O >
12. mynd. Veðurathuganir frá Kjörvogi í snjóflóðahrinunni á Vestfjörðum og Mið-Norð-
urlandi i lok mars 1953.
9. Snjóflóðin á Neskaupstað 20. desember
1974: Hinn 9. des. brá til hvassrar norð-
lægrar áttar, sem hélst óslitið fram um
20. des. með talsverðu frosti og mikilli
fannkomu ofan á harðfenni til fjalla.
Flóð tóku að falla tveimur dögum fyrir
flóðin á Neskaupstað; 18. des. féll flóð á
Selstöðum í Seyðisfirði og 19. des. sunn-
an við Oddsskarð og ofan byggðar i Nes-
kaupstað. (Hjörleifur Guttormsson, 1975).
Nokkur dæmi um krapahlaup
eða mjög vot hlaup:
1. Krapahlaup úr Bjólfinum við Seyðisfjörð
13. janúar 1882: Hlaðið hafði niður snjó
skömmu eftir áramót, en svo skall á asa-
hláka. SA ofsaveður og stórrigning.
2. Krapahlaup úr Bjólfinum 31. janúar
1894: Hinn 31. jan. gerði rigningu eftir
að snjóað hafði i marga daga og mikill
snjór var kominn í fjöll.
3. Krapahlaup á Austurlandi siðari hluta
fcbrúar 1904 (m. a. á Seyðisfirði, Reyð-
arfirði og Eskifirði): Mikinn snjó hafði
gert á þorranum, en síðan gerði mjög öra
hláku hinn 21. febr. og næstu daga.
4. Páskahlaupin á Mið-Norðurlandi 1919
(Páskadagur var 20. apríl): Kyngt hafði
niður snjó í logni ofan á harðfenni og svo
gerði ákafa sunnanhiáku með mikilli
rigningu um páskana.
5. Flóð á Siglufirði 23. nóv. 1938: Geysi-
mikla snjókomu gerði á Siglufirði um 20.
nóv. og varaði í nokkra daga, en 23. nóv.
tók að rigna og flóð skullu yfir.
'277