Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1980, Qupperneq 27

Náttúrufræðingurinn - 1980, Qupperneq 27
5. Óvenjulegur fang- og burðartími Þótt hinn eðlislægri fengitími ánna sé einkum bundinn við vetrarmánuðina hafa rannsóknir þessar leitt í ljós, að nokkuð er um undantekningar frá þeirri meginreglu. Ekki er vitað hver raun- veruleg tíðni þeirra frávika er, en um tiltölulega sjaldgæf fyrirbrigði er að ræða, jafnvel svo, að á fjölda búa viröast þau óþekkt með öllu. Þess ber að geta, að hjá erlendum sauðfjárkynjum með árstíðabundinn fengitíma, eru ætíð nokkur brögð að því, að einstaka ær beiði utan venjulegra tímamarka. Þær heimildir, sem borist hafa, greina frá einstökum burðum í öllum mánuðum ársins utan hins venjulega sauðburðar- tima á vorin. Sjaldgæfast er, að œr fái fang í júlí og beri ! nóvember. Raunar eru burðir fátíðir fyrri hluta vetrar, en það bendir til þess, að mjög litið sé um að ær beiði að sumarlagi. Ekki virðist óvenjulegur fang- eða burðartími bundinn viö ákveðinn aldur áa þvi að þær eru á öll- um aldri, 1 — 12 vetra. Aftur á móti kom eftirfarandi í ljós, þegar kannað var, hvers konar ær hafa fest fang á tímabil- inu frá lokum hins eðlislæga fengitima til byrjunar hins næsta (maí — nóvem- ber): a) Mánuðirnir maí, júní ogjúlí Ær, sem festa fang á þessu tímabili, eru annað hvort geldœr, veturgamlar og eldri, eða ær sem látið hafa fóstri, oft seint á meðgöngutima, t. d. um sumarmál. Að jafnaði virðast ær, sem ganga með lömb (mylkar), ekki festa fang i þessum mánuðum. Ætla má, að það sé afskap- lega sjaldgæft að ær beiði á tímabilinu frá seinni hluta júni (Jónsmessu) fram í seinni hluta júlí, en úr því virðist slíkum fyrirbrigðum fara fjölgandi. b) Mánuðirnir ágúst, september, oklóber og nóvember Um er að ræða bæði geldœr, vetur- gamlar og eldri, og lambœr, væntanlega mylkar, sem borið hafa á venjulegum vortíma eða fyrirmáls, allt frá miðjum vetri til vors. Ætla má, að mjólkur- myndun og fóstrun lamba hafi haml- andi áhrif á kynstarfsemina fram eftir sumri, enda mjög fátítt að mylkar vor- bærur beiði fyrr en upp úr miðjum ágúst, samkvæmt þeim heimildum, sem hér er byggt á. G. Hvað orsakar beiðsli utan árstíðabundins fengitíma? Þótt engar rannsóknir hafi verið gerðar á hormónastarfsemi í íslenskum ám má ætla, að hjá þeim einstaklingum, sem beiða utan hins eðlislæga, árstiða- bundna fengitíma, sé um einhvers konar frávik eða óreglu að ræða. Egglos og beiðsli eru undir flókinni stjórn heila, heiladinguls og kynhormóna, og hefur lengi verið vitað, að hjá sauðfé verki minnkandi dagsbirta örvandi á kyn- starfsemina. Ær, sem fengið hafa fang utan fengitima, þ. e. a. s. á tímabilinu frá vori til hausts, hafa notið sömu dagsbirtu og annað fé í högum, og ekki virðist ástæða til að tengja þessi frávik breytingum í dagsbirtu. Erlendar rann- sóknir sýna, að ýmiss konar snöggar breytingar í umhverfinu geta haft áhrif á beiðsli áa, og er hugsanlegt, að þar sé skýringa að leita á því, hvers vegna stöku ær beiða utan hins reglulega fengitíma. Af slíkum umhverfisþáttum mætti nefna breytingar á nœringarskil- yrðum, t. d. ær settar á ræktað land síðla sumars, eða áhrif frá hrútum (lykt), eink- um ef þeir hafa ekki gengið með ánum um langt skeið. I ljós kemur, að á 281
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.