Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 28

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 28
nokkrum búum hafa fáeinar ær, stund- unt allmargar, borið á mjög svipuðum, óvenjulegum tíma, og viröist gangmál þeirra hafa verið allvel samstillt. Þetta bendir til þess, að viðkomandi ær hafi orðiö fyrir snöggum áhrifum á sama tíma, þegar þær fengu fang, líklega frá hrútum, einum eða fleiri, áhrifum, sem hafa orsakað egglos og beiðsli að sum- arlagi. Virðist ástæða til að huga sér- staklega að þessari tilgátu, þegar leitað er skýringar á áðurnefndum fyrirbrigð- um. Þess skal getið, að í sumum tilvikum bera sömu ærnar tvisvar eða oftar á óvenjulegum árstíma, stundum ár eftir ár, og þá gjarnan um eða upp úr ára- mótum. Þessu er þó mjög misjafnt farið, því að líklega er algengara að slíkt hendi ær aðeins einu sinni. Hvað einstök bú varðar getui' verið um aðeins eitt ein- stakt fyrirbrigði að ræða, sem endurtek- ur sig ekki, stundum fáeinar ær i einu. Þess eru samt dæmi frá fáeinum búum, að óreglan hafi ágerst, þannig að ár eftir ár hafi vaxandi fjöldi áa boriö að vetr- inum. Þannig var þessu t. d. farið á Grjóteyri í Andakílshreppi um skeið (Aðalsteinn Hjartarson, 1973). Endurtekningar á afbrigðilegum burðum leiða hugann að hugsanlegum tengslum þeirra við arfgerð viðkomandi áa. í flestum tilvikum virðist ekki hafa verið um skyldleika að ræða milli áa, sem báru á óvenjulegum árstíma, þó eru þess dæmi í gögnunum, að t. d. mæðgur og systur eða ær út af sama hrút hafi sýnt slíkt hátterni. Einn heimildar- manna á Norðurlandi taldi, að minna hafi verið um óvenjulega burði hjá fé af þingeyskum stofni fyrir fjárskipti en hjá fé af vestfirskum stofni eftir þau, á því svæði sem hann þekkti til. Niðurstöð- urnar gefa þó ekki neinar beinar vís- bendingar um mismunandi tíðni slíkra fyrirbrigða eftir fjárstofnum. Reyndar eru flestar heimildirnar um ær af vest- firskum stofni, enda dreifðist fé af Vest- fjörðum tiltölulega rnikið til ýmissa landshluta við fjárskiptin. 1110 tilvikum var liturknna tiltekinn, og kom í ljós að í 60% þeirra var um mislitar ær að ræða en 40% hvítar. Aætlað er að hjá íslensku fé séu um 16% fjárins mislitt (Stefán Aðalsteinsson, 1979). Því virðist tiltölulega há tíðni óvenjulegra burða meðal mislitra áa samkvæmt þessum gögnum. Þótt heim- ildir séu af skornum skammti gæti þarna verið visbending um tengsl litar- erfða við eiginleika áa til að beiða utan venjulegs fengitíma. Við þessa burði fæddust að meðaltali 1.42 lömb hjá mislitum ám og 1.24 hjá þeim hvítu, þ. e. a. s. 18 lamba munur við hverju 100 burði. Upplýsingar um frjósemi voru skráðar fyrir samtals 174 burði. Meðal- talið var 1.29 fædd lömb eftir ána, þ. e. a. s. 1.07 fyrir veturgamlar ær, 1.14 fyrir tvævetlurog 1.39 fyrir fullorðnar ær. 7. Tímalengdin frá burði til nœsta fangs Þar eð íslenskar ær eru látnar fá fang að vetri og bera að vori á tiltölulega stuttum og afmörkuðum tímaskeiðum, er breytileiki lítill hvað varðar þann tíma, sem líður frá burði til næsta fangs. Til dæmis má gera ráð fyrir, að sauð- burður sé á sama tíma á búinu ár hvert og standi yfir um mánaðartíma. Ættu þá að jafnaði að líða um 350—380 dag- ar á milli burða einstakra áa. Með því að gera ráð fyrir að meðgöngutími sé 143 dagar að meðaltali líða því 207 — 237 dagar frá burði til næsta fangs. 282

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.