Náttúrufræðingurinn - 1980, Síða 29
Svo sem áður var greint frá, kemur
stöku sinnum fyrir, að ær, sem borið hafa
á venjulegum vortíma, fara að beiða
síðla sumars, þó varla fyrr en eftir rniðj-
an ágúst, og má gera ráð fyrir að slíkum
tilvikum fjölgi eftir því sem nær dregur
hinum árstiðabundna fengitíma i seinni
hluta nóvember. Hjá þessum ám getur
því tímalengdin frá burði til næsta fangs
styst niður í um það bil 90 daga. At-
hyglisvert er, að ær, sem borið hafa á
tímabilinu frá vori og fram um áramót,
hafa yfirleitt beitt og fcngið næst á
venjulegum fengitima, allt frá lokunt
nóvember. Hafi þær borið að hausti eða
fyrri hluta vetrar ganga lömbin oftast
undir, og eru þær því venjulega mylkar
þegar þær fá fang. Virðist því mjólkur-
myndun og fóstrun lamba á þessum
árstíma (skammdegi) ekki vera haml-
andi á eiginleika ánna til að beiða og
festa fang (sjá 2. ntynd). Hjá þessum ám
er tímabilið frá burði til næsta fangs
oftast aðeins um 60—90 dagar, jafnvel
mun skemmra í stöku tilvikum. Ef ær
bera eftir áramót minnka likurnar á þvi,
að þær festi fang og beri að vori, og þess
eru ekki dænri, ef lamb gengur undir
(mylkar). Aftur á móti getur liðið til-
tölulega stuttur tími til fangs hafi ær
látið fóstri síðla vetrar eða undir vor,
venjulega aðeins fáeinar vikur, enda
ætíð nokkur brögð að því að slíkar ær
beri sumrungum eða haustlömbum.
8. Kytiþroski lambhrúta
Hjá hrútlömbum er að jafnaði náið
samhengi á milli aldurs og vænleika
2. mynd. Tvennir tvílembingar, sem ær á Hjaltabakka i A.-Hún. kom upp á einu ári.
Hrútarnir (t. h.) voru fæddir seint i september 1976, en gimbrarnar (t. v.) í lok april 1977.
Myndina tók Jón Þórarinsson i lok september 1977. — Two þairs of twins produced by the same
ewe in oneyear. The frnir on the righl (ram lambs) were born in late September 1976 but the one on the left
(ewe lambs) were born in late April 1977. The photograph was taken in late September 1977.
283