Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 48
2. mynd. Frumur gerilsins Eschenchia coli stækkaður 11.000 sinnum í rafeindasmásjá.
Sumar þeirra eru greinilega að skipta sér.
mismunandi eftir frumugerðum. Mikil-
vægustu þættir þess eru þó öllum frum-
um sameiginlegir.
Sem dæmi um frumu er heppilegt að
taka ristilgerilinn (bakteríuna) Escheri-
chia coli sem nú hefur verið rannsakaður
rækilegar en nokkur önnur frumuteg-
und. Þetta er einfrumungur. Geril-
fruman (2. mynd) er sívalningur, um
það bil tveir þúsundustu úr millimetra á
lengd og tæplega einn ))úsundasti úr
millimetra í þvermál. Hún vegur um
einn billjónasta hluta úr grammi.
Fruman er umlukin örþunnri himnu.
Utan himnunnar er allþykkur veggur
sem er frumunni til styrktar.
Inni í hinum litla himnulukta heimi
gerilfrumunnar er þröng á þingi. Þar
eru 10—100 milljarðar sameinda sem
sennilega eru af allt að því 8000 mis-
munandi gerðum. Yfirleitt eru þetta
sameindir sem fruman getur ekki án
verið. Litlu sem engu er ofaukiö. Við
nánari athugun sést að þessum sam-
eindum má skipta í tvo meginflokka,
smásameindir og stórsameindir. Þær
síðarnefndu eru venjulega a. m. k.
hundrað sinnum stærri en þær fyrr-
nefndu. Tegundir smásameinda í frum-
unni eru líklega um eða nokkuð yfir
2000. Sumar þeirra eru notaðar sem
byggingarefni stórsameinda. Stórsam-
eindununt má skipta í þrjá undirflokka,
fjölsykrur, kjarnsýrur og hvitur (prótín).
Fjölsykrutegundir eru fáar í þessum
frumum og ekki ástæða til að fjölyröa
um þær hér. Tegundir kjarnsýra og
hvítna skipta hins vegar þúsundum og
gegna mjög mikilvægum hlutverkum í
frumunni. Kjarnsýrur og hvítur eiga
það sameiginlegt að hvorar tveggja eru
gerðar úr löngum keðjum smásam-
einda, kjarnsýrurnar úr svonefndum
kirnum (núkleótíðum) en hvíturnar úr
amínósýrum. 1 frumunni eru tvenns
konar kjarnsýrur, deoxýribósakjarnsýra
(skammstafað DKS eða DNA) og
ríbósakjarnsýra (RKS eða RNA). Hvor
þeirra urn sig er sett saman úr ferns
konar kirnum. Hvíturnar eru hins vegar
gerðar úr 20 mismunandi aminósýrum.
Það á við bæði um kjarnsýrur og hvítur
302