Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 49
að röð byggingareininganna, kirnanna
eða amínósýranna, er mismunandi allt
eftir því hver sameindategundin er.
En livert er hlutverk þessara löngu
sameindakeðja?
Hvíturnar eru flestar notaðar sem
hvatar, en sumar sem byggingarefni;
enn aðrar gegna sérstökum stjórnunar-
lilutverkum. I gerilfrumunni þurfa lík-
lega að fara frarn 2000—3000 efnahvörf.
Því sem næst öll þeirra eru hvötuð af
lífhvötum (ensímum). Allir eru lífhvat-
arnir hvítur. Sérhæfni þeirra er geysi-
mikil. Hver þeirra hvatar yfirleitt aðeins
eina tegund efnahvarfs. Þess vegna þarf
fruman á þúsundum hvitutegunda að
halda. Sérhæfni hvítu ræðst af amínó-
sýruröð hennar, enda einkennist sérhver
hvítutegund af ákveðinni amínósýru-
röð.
Kjarnsýrurnar gegna tvíþættu hlut-
verki: Þær stjórna smíði hvítusameinda
í frumunni og miðla jafnframt boðum
um gerð þeirra frá einni kynslóð til
annarrar. Eiginleikar frumunnar mót-
ast síðan að mestu af hvítusameindum
hennar. Þannig ráða kjarnsýrurnar
erfðum og eðli tegundarinnar. Þetta
skal nú skýrt nánar: I gerilfrumunni er
ein geysilöng, tvöföld DKS sameind sem
er erfðaefni frumunnar. Þessi sameind
skiptist í nokkur þúsund starfseiningar,
svonefnd gen. Flest gen bera boð um
gerð hvítusameinda. Hvert slíkt gen
ræður gerð einnar amínósýrukeðju, en
hvítusameindir eru gerðar úr einni,
tveimur eða fáeinum slíkum keðjum.
Þegar gen starfar er gert af því afrit (3.
mynd). Efni afritsins er kjarnsýran
RKS. Þetta afrit er síðan notað sem
3. mynd. Túlkun erfðaboöa. Boðin eru fólgin i röð kirnanna (núkleótíðanna) A, T, G og C
í tvöfaldri DKS sameind. Þættir DKS samcindarinnar eru bundnir hvor öðrum með veikum
efnatengjum þannig að A tengist ævinlega T, en G tengist C. Þættirnir mótsvara því hvor
öðrum kirni fyrir kirni. Túlkun erfðaboða (starfsemi gena) fer þannig fram að sérstakur
lifhvati myndar afrit af öðrum DKS þætti gens. Þetta afrit er gert úr kjarnsýrunni RKS sem
likist mjög DKS. RKS sameindin (mRKS) er síðan notuð sem mót við röðun aminósýra í
peptíökeðju. Hver jrrjú kirni í RKS samsvara þá einni amínósýru (gly, arg o.s.frv.) i peptið-
keðju. Myndun peptiðkeðja fer fram á ribósómum i umfrymi frumu.
CCTGCGTTT CTA
GGACGCAAAGAT
Umritun
'gga'cgc'aaa'gau'
þýóing
DKS
m R K S
----gly-arg -lys -asp-------Hvíta
303