Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 50

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 50
AGACTCGTGAT TCTGAGCACT A AGACTCGTGAT TCTGAGCACT A AGACTCGTGAT TCTGAGCACTA 4. mynd. Eftirmyndun DKS. Hinir mótsvarandi þættir DKS sameindarinnar skiljast að og hvor þeirra um sig er notaður sem mót við myndun nýrrar sameindar. Tvær tvöfaldar samcindir eru myndaðar sem báðar eru nákvæmlega eins og sú eina sem fyrir var. Til eftirmyndunarinnar þarf margbrotið kerfi lifhvata. nokkurs konar mót við ákvörðun á röð amínósýra í amínósýrukeðju. Akveðin samsvörun er á milli kirnisraðar í DKS og RKS annars vegar og amínósýru- raðar í hvítum hins vegar. Hver þrjú kirni ráða stöðu einnar amínósýru. Segja má að kirnisröö gens búi yfir ákveðnum táknmálstexta sem fruman þarf að þýða yfir á aminósýrumál hvítu ef gagn á að verða af. Til þýðingarinnar notar fruman mjög flókið efnakerfi, enda skiptir miklu máli að hún sé vel af hendi leyst. Táknmál kjarnsýrunnar er nefnt erfðatáknmálið. bað er eitt og hið sama í öllum lífverum jarðar. Hin tvöfalda DKS sameind gerilsins er þannig úr garði gerð að fruman getur eftirmyndað hana nákvæmlega, búið til tvær tvöfaldar sameindir sem hvor um sig er nákvæmlega eins og sú cina sem fyrir var (4. mynd). Þetta gerist i sér- hverri frumukynslóð. Fruman fjölgar sér með tviskiptingu, og sín DKS sam- eindin kemur í hlut hvorrar afkvæmis- frumu. Nýju frumurnar fá báðar sams konar erfðaefni og eru þess vegna báðar gæddar sömu hæfileikum til myndunar smásameinda og stórsameinda. Þannig erfast eiginleikar frumunnar frá kynslóö til kynslóðar. Það sem hér hefur verið sagt um hlutverk stórsameindanna kjarnsýru og hvítu í gerð og starfi gerilfrumunnar á einnig við um allar aðrar frumur ein- frumunga og fjölfrumunga. Það eru einmitt þessar stórsameindir, störf þeirra og samspil, sem öðru fremur ein- kenna lifsskipulag jarðarinnar. Kjarn- sýrurnar sem flytjendur erfðaboða, hvíturnar sem túlkendur þeirra. FRUMUSMÍÐ Hugum nú betur að hvítusameind- unum. Starf þcirra einkennist af mikilli sérvirkni sem er ntjög undir þrívíðri lögutt þeirra kontin. En hvað mótar lögunina? Enginn vafi leikur nú á því að hún mótast sjálfkrafa af amínósýruröð peptíðkcðjanna sem hvíturnar eru 304

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.