Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1980, Side 51

Náttúrufræðingurinn - 1980, Side 51
2 RKS um 35 hvitur © 1 RKS um 20 hvitur 30 s 5. mynd. Sundrun og endurbygging ríbósóma. Ríbósóm gerla, svonefnd 70S ríbósóm, eru sett saman úr tveimur ögnum, 30S og 50S. Einungis fullgerð (70S) ríbósóm eru starfhæf. Þau annast myndun peptíðkeðja. 1. 70S ríbósóm klofin í 30S og 50S agnir sem eru skildar að og einangraðar; 2. 30S og 50S ögnum sundrað í RKS sameindir og hvítur; 3. sjálfkrafa sam- söfnun 30S og 50S agna í tilraunaglasi; 4. 30S og 50S agnir sameinaðar á ný og 70S ríbósóm mynduð. Þessi ribósóm eru starfhæf. © 30 S gerðar úr. Efnatengin sem taka þátt í mótuninni eru að mestu leyti veik tengi, t. d. vetnistengi, jónatengi og vatns- fælnistengi. Þessi tengi geta myndast og rofnað án tilstillis sérstakra hvata. Notkun slíkra tengja gerir það að verk- um að þrívíð lögun hvítusameinda er mjög viðkvæm fyrir ýmiss konar breyt- ingum á nánasta umhverfi þeirra, t. d. breytingum á hitastigi, sýrustigi og styrkleika jóna. Og stundum þarf ekki nema lítils háttar breytingu á lögun til þess að hvítusameind verði óstarfhæf með öllu. Þetta á ekki síst við um líf- hvatahvítur. Þegar byggt er úr hvitum i lifandi frumu virðist vera fylgt sömu megin- reglum og gilda þegar hvítusameind- irnar sjálfar eru settar saman úr amínó- sýrukeðjum: Byggingareiningar safnast saman sjálfkrafa og tengjast veikum efnatengjum. Tökum dæmi: Ríbósóm eru frumulíffæri sem annast hvítusmíð, og er mikill fjöldi þeirra í flestum frum- um. Þau eru aðeins um 0.00002 mm í þvermál, sett saman úr tveimur ögnum sem hvor um sig er gerð úr RKS og hvítu. í gerlinum E. coli er minni ögnin gerð úr um 20 mismunandi hvítusam- eindum og einni RKS sameind, en sú stærri er gerð úr um 35 hvítusameind- um og tveimur RKS sameindum. Ríbósómagnir hafa verið einangraðar og síðan sundrað í byggingareiningar sínar, RKS og hvítur. Tilraunir hafa sýnt að við ákveðin skilyrði safnast þessar einingar sjálfkrafa saman og mynda ríbósómagnir á ný (5. mynd). Slíkar endurbyggðar agnir starfa alveg jafn eðlilega og þær sem myndast haía í lifandi frumu. Engra hvata er þörf þeg- ar þetta margbrotna frumulíffæri myndast úr byggingareiningum sínum, enda er einungis urn veik efnatengi að ræða þegar þær safnast saman. Það er heldur ekki þörf fyrir sérstakt mót eða sérstaka verkstjórn aðra en þá sem fólgin er í einingunum sjálfum. Slík er helsta byggingaraðferð frumunnar. Hin veiku efnatengi valda því að byggingarvirki frumunnar eru að jafn- aði nijög þjál og sveigjanleg. Öþjál stoðefni í dýra- eða plöntuvefjum liggja yfirleitt utan frumuhimnunnar. FJÖLGUN I EIGIN MYND Lífverur leitast við að viðhalda skipulagi sínu, vaxa og fjölga sér. Til þessa þurfa þær bæði næringarefni og 305

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.